Haustveiðin í Þingvallavatni að taka við sér

Rosafiskur sem Cezary landaði nýlega í Þjóðgarðinum.

Oft er talað um að vorið og inn í sumarið sé gósentími til að veiða risaurriðann í Þingvallavatni en sannast sagna er síðsumarið og haustið ekki mikið síðra, sérstaklega í Þjóðgarðinum, en einnig á öðrum svæðum.

„Síðustu tvær vikurnar hafa verið sterkar, en aðaltíminn er framundan,“ segir Cezary Fijakowski sem hefur veitt og stúderað Þjóðgarðinn um árabil og veitt þar tugi stórurriða á hverju hausti. En menn þurfa sterkar græjur í þessi átök, bleikjan að mestu horfin úr aflanum, löngu komin í hrygningu og eftir eru þessi ferlíki úr Öxará sem reyna að fita sig fyrir veturinn og eftir hrygninguna.