Eyjafjarðará að toppa sig enn og aftur. FB síða árinnar greindi frá eftirfarandi í dag:
„Stærsta bleikja sumarsins úr Eyjafjarðará (sem við vitum af) kom af Jökulbreiðu í morgun en hún mældist heilir 72cm!Veiðimaðurinn heitir Aron Sigurþórsson og óskum við honum innilega til hamingju með þennan boltafisk.“
Ekki kemur meira fram, kannski bara alveg nóg. Gaman hefði verið að vita hvaða flugu tröllið tók, það kemur kannski síðar










