Eftir rólega byrjun í Eystri Rangá er nú að byrja að glæðast þar sem og í nægliggjandi vatnsföllum. Við heyrðum í Jóhanni Davíð Snorrasyni hjá Kolskegg og hann sagði:
„Þverá í Fljótshlíð og Affall í Landeyjum opnuðu í gær fyrir veiði. Skemmst er frá því að segja að Þverá opnaði með tvemur stórlöxum en ekki kom lax úr Affallinu fyrsta daginn og bíðum við enn um sinn þar. Í Eystri Rangá veiddust fjórir laxar í gær og sex í morgun. Svo voru líka margir misstir og menn sáu nýjan fisk víða, við erum því að vona að hann sé að fara að skila sér í meira magni. Einnig hefur verið nokkuð líflegt á Austurbakka Hólsár og fékk undirritaður til að mynda tvo þar í beit í fyrradag. Magnús og félagar voru þar í stuði í morgun og fengu tvo stórlaxa og misstu fjóra, einn af þessum vænu er á meðfylgjandi mynd.“










