Blanda loksins komin á blað

Blanda
Blanda . mynd tekin í opnun fyrir nokkrum árum, líklega af Höskuldi Birki Erlingssyni.

Mönnum var ekki um sel við Blöndu, vakt eftir vakt fisklaus og lítið að gerast í þá veru að menn sæju þó líf á svæðinu. Svo loksins brotnaði ísinn í gærmorgun þegar ríflega 90 cm lax var dreginn á þurrt.

Detlev Fischer veiddi fyrsta laxinn í Blöndu, Erik Koberling tók myndina af honum.

„Kvöldið áður má segja að teikn hafi verið á lofti. Ég  setti þá sjálfur í stóran fisk sem slapp og það voru „head and tail“ hér og þar. Vaxandi straumur og hann hefur verið að skila einhverju,“ sagði Erik Koberling umsjónarmaður Blöndu í samtali við VoV. Síðan hefur allt verið líklegra og lax sést á nokkrum stöðum. Þannig að við sjáum hvað setur.