Laxá í Leir. 13 tilboð – eitt afgerandi hæst

Lax stekkur í Laxfossi í Laxá í Leirársveit. Mynd Einar Falur.

Mikið var sótt í Laxá í Leirársveit sem auglýst var í útboði fyrir nokkrum vikum síðar. Alls voru opnuð 13 tilboð í ána, en þau voru þó aðeins frá sex bjóðendum, enda var talsvert um svokölluð frávikstilboð.

Ef við skoðum hreinar krónutölur sem boðnar voru og tengjast ekki frávikum, þá er Sporðablik með hæsta tilboðið, 69 milljónir. Sporðablik samanstendur af fyrri leigutökum, Hauki Geir Garðarssyni og Ólafi Johnson. Auk þess voru þeir félagar með 4 frávikstilboð sem spönnuðu frá 71.100 milljónum og upp í 72.200 milljónir.

Næstir í hreinni krónutölu voru félagarnir í Fish Partners með boð upp á 62.850 milljónir. Þeir voru og með frávikstilboð sem snérist um umboðssölu.

Bókabúðin ehf bauð 58.500 milljónir. Dögg Hjaltalín er skráð stjórnarmaður, en hún er einn eigenda bókaútgáfunnar Sölku. Eiginmaður hennar er Ólafur Finnbolgason fasteignasali sem gegnt hefur ýmsum trúnaðarstörðum hjá SVFR.

Hreggnasi, sem er stór leigutaki á markaðinum bauð 53.500 milljónir og umboðssölu í frávik. Aðili sem kallar sig AJA bauð 53 milljónir. Það mun vera Arnar Jón Agnarsson, sem komið hefur að leigu ýmissa áa í gegnum árin, m.a.a. Laxá á Ásum og Deildará.

Þá má nefna þá Kristinn Ingólfsson hjá Veiða.is og Guðmund Atla, leigutaka Fossár í Þjórsárdal, sem buðu 51.450 milljónir og umboðssölu sem frávik.

Þess má geta að eigendur Sporðabliks, sem eru hæstbjóðendur, gagnrýndu að nokkrir aðilar byðu fram umboðssölufyrirkomulag í frávikstilboðum.