Það hafa verið merkilegir urriðar í afla veiðimanna á ION svæðum Þingvallavatns að undanförnu. Fiskar með slöngumerkjum hafa verið að endurveiðast og skemmtilegt er að velta fyrir sér þeim gögnum sem það hefur skilað.

Jóhann Rafnsson veiðileiðsögumaður á svæðunum greindi okkur frá þessum athyglisverðu punktum. Til að mynda veiddist einn með merkið Is-109646. Hann var mikill bolti, 78 cm og 6,1 kg. Sá var merktur við hrygningu í Ölfusvatnsá um miðjan október 2017 og var þá 71 cm. Hafði sem sagt lengst um 7 cm.


Þá veiddist annar með merkið: Is-111483 í Ölfusvatnsárósi fyrir skemmstu og var mældur 67 cm og 3,6 kg. Sá var merktur í Ölfusvatnsárósi 10.ágúst sumarið 2017. Hann var þá 58 cm. Hafði lengst um 9 cm.












