Sjóbirtingsveiðin á Sunnanverðu landinu var góð, víða frábær, en hefði getað verið betri vegna aðstæðna. Besti tíminn er þegar allra veðra er von og hluti af haustinu var óhagstæður þó að fullt væri af fiski. Við heyrðum í Jóni Hrafni leigutaka Eldvatns og fréttir frá honum þverskera svolítið stöðuna í Vestur Skaft.
Jón Hrafn vænti metvertíðar, eftir uppgang síðustu ára, en fékk hana ekki. Það var samt miklu meira af fiski í ár en áður og innistæða fyrir meti. Mikill uppgangur hefur verið í birtingi á þessum slóðum og eflaust hefði metið steinlegið ef að skilyrði hefðu verið betri. En Jón Hrafn sagði: Þetta endaði í 495 birtingum, 10 löxum og 5 bleikjum, alls 510 fiskum. Þetta er minna en metárið í fyrra en engu að síður ansi gott ef horft er til síðustu áratuga. Smá tölfræði: Nú í sumar/haust, 80 fiskar 70 til 79 cm, 14 fiskar 80-89 cm og einn 95 cm“










