Tölur þessar fundum við á angling.is og þegar fyrsta tala er skráð er kominn 15. júní, en veiðin hófst þar 5. júní. Á þessum tíu dögum voru skráðir 302 laxar eftir einstaklega líflega byrjun, einhverja þá bestu sem menn muna. En eftir 15. júní voru skráðar tölur eftir hverja viku veiðitímann á enda.
| Dags. skráningar | Fjöldi laxa | Fjöldi daga í tímabili | Veiði á tímabili | Fjöldi stanga | Veiði pr. stöng á tímabili | Veiði pr. stöng pr. dag á tímabili |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 15.6.2016 | 302 | 7 | ||||
| 22.6.2016 | 535 | 7 | 233 | |||
| 29.6.2016 | 762 | 7 | 227 | |||
| 6.7.2016 | 1020 | 7 | 258 | 14 | 18,4 | 2,6 |
| 13.7.2016 | 1300 | 7 | 280 | 14 | 20 | 2,9 |
| 20.7.2016 | 1492 | 7 | 192 | 14 | 13,7 | 2 |
| 27.7.2016 | 1681 | 7 | 189 | 14 | 13,5 | 1,9 |
| 3.8.2016 | 1858 | 7 | 177 | 14 | 12,6 | 1,8 |
| 10.8.2016 | 2028 | 7 | 170 | 14 | 12,1 | 1,7 |
| 17.8.2016 | 2217 | 7 | 189 | 14 | 13,5 | 1,9 |
| 24.8.2016 | 2244 | 7 | 27 | 14 | 1,9 | 0,3 |
| 31.8.2016 | 2295 | 7 | 51 | 14 | 3,6 | 0,5 |
| 7.9.2016 | 2330 | 7 | 35 | 10 | 3,5 | 0,5 |
| 14.9.2016 | 2356 | 7 | 26 | 10 | 2,6 | 0,4 |
| 21.9.2016 | 2386 | 7 | 30 | 10 | 3 | 0,4 |
Alls eru þetta 2386 laxar, en aðeins fjórum sinnum hefur veiðin verið meiri í ánni og í öll skiptin á síðustu árunum, eða 2015, metveiðin 4829 laxar, 2013: 2611 laxar, 2010: 2777 laxar og 209: 2413 laxar. Fyrir utan í sumar hefur áin aðeins þrisvar til viðbótar farið yfir 2000 laxa, 2011: 2032 laxar og síðan tvisvar á áttunda áratugnum, 1975 og 1978 þegar veidust 2363 og 2147 laxar. Á þeim árum var áin kolgruggug og þekktust fyrir ófyrirleitna og opinbera húkkveiði.
Mest er veitt á 14 stangir í Blöndu, en angling.is skráði þá tölu ekki inn fyrr en vikuna 6.-13.júlí, en í aðdraganda þeirrar viku voru öll svæði árinnar að verða virk eftir að lax gekk í miklum mæli óvenjulega snemma. Fram að því var mesta veiðin á aðeins fjórar stangir á neðsta svæði árinnar. Eins og sjá má af tölunum er þar ugglaust um einhverja mestu dagveiði á stöng sem fyrirfinnst hér á landi. Niðurröðun stanga ber þó að taka með í reikninginn, en frá 5.6 til 19.6 var aðeins veitt á stangirnar fjórar á neðsta veiðisvæðinu. Þar getur að líta óhemju dagveiði á hverja stöng á neðsta svæðinu. Þann 20.6 og til 5.9 eru komnar 10 stangir til viðbótar á svæðin þrjú þar fyrir ofan. Eftir 15.9 eru stangirnar svo aðeins tíu því þá er lokið veiðum á neðsta svæðinu.
Athygli vekur einnig að veiði dregst mjög saman fimm síðustu vikurnar og er samanlögð veiði þá aðeins 169 laxar, sem nær ekki einu sinni vikutölu vikunnar á undan, en þá voru 189 laxar dregnir á þurrt. Eflaust spilar hér saman yfirfall, dofnandi veiði neðst í ánni og slakari nýting stangardaga á efri svæðum.










