Kjartan Antonsson og Eydís Gréta hafa ekki látið staðar numið með þróun á súperflugunni Zeldu eftir að hún sló rækilega í gegn í fyrra eftir að hafa verið “afhjúpuð”. Nú eru komnar stærri og loðnari týpur og við heyrðum í þeim hjónakornum. Eydís var fyrir svörum.

„Hugsunin á bak við Zeldur númer 6 og 8 er einfaldlega að þetta er oft mjög góður kostur á undan stórum túpum.Flest öll könnumst við við veiðimanninn sem veiðir á ekkert annað en smáflugur en kastar síðan stórum þyngdum túpum bara af því að þær heita túpur. Stærri Zeldurnar hafa reynst mjög vel í miklu vatni , lituðu vatni og þungum straum. Zelda var fyrst og fremst hönnuð sem algjörlega strípuð fluga, engin vængur, skegg og svo framvegis.

Zelda
Þetta er svolítið annað, loðnari og með kúlu…..

Fyrstu 3 stóru eintökin númer 6 voru prófuð í fyrra í mjög lituðu vatni og fékkst lax á öll eintökin. Öll eintökin voru ólík en eitt eintakið hafði verið hnýtt með væng. Síðan þá hafa nokkrir veiðimenn prófað stóru Zeldurnar og nánast allir þeirra með góðum árangri. Dæmi eru um frá veiðimönnum nú í vor sem höfðu kastað túpum án árangurs settu fljótlega í fiska eftir að þeir skiptu yfir í stórar Zeldur númer 6 og 8 í ýmsum útfærslum. Stærri Zeldurnar hafa einnig reynst gríðalega vel í sjóbirtingsveiðina í miklu vatni sem sýndi sig í vor þar sem Zeldan bar þungan af þeim fiskum sem veiddust í sumum hollunum. Það er ekki endilega alltaf besti kosturinn að fara í stórar túpur við erfiðar aðstæður , oft er betra að setja léttdressaðar stóra flugur og þyngja taum.“

Svo mörg voru þau orð Eydísar Grétu. Nokkru fyrr hafði Kjartan sent okkur pistil um gömlu Zeldu 2018. Hann sagði: „Þar sem árnar opna nú hver af annari er gaman að segja frá því að Zeldan er farin að láta til sín taka . Hjörtur Guðmundsson góðkunningi Zeldunnar fór ásamt góðum vinum í Flókadalsá fyrir skemmstu. Hjörtur hefur frá því Zeldan kom fram á sjónarsviðið ávalt haft nokkur mismunandi eintök, stærð og liti af Zeldunni í boxinu þegar hann fer til veiða. Hjörtur gerði sér lítið fyrir og setti í 6.laxa á Zelduna og landaði hann 3.af þeim en missti hina 3.  Samtals komu 6.laxar á land hjá þeim félögum á 3.stangir svo það segir allt sem segja þarf um Zelduna þegar 50% af löxunum í túrnum er landað á Zelduna Líka skemmtilegt að segja frá því að Hjörtur fór í bleikjutúr í fyrra í ónefnda á og þar reyndi hann bleikjuútgáfuna af Zeldunni. Hjörtur landið 13 stk af fallegri sjóbleikju og 10.þeirra tóku Zelduna. Sagði Hjörtur að það hefði verið greinilegt að bleikjan hafi tekið Zelduna frekar en hefðbundnar bleikjuflugur því hann hefði reynt margar flugur þennan dag. En langmestu viðbrögðin voru alltaf þegar Zeldan fór undir.“