Nú er sumri tekið að halla og þá breytist allt í vötnunum. Eftir að hafa farið rólega í gang blómstruðu vötnin, en nú fer í hönd nýr árstími, síðsumar. Við spurðum því einn slyngasta vatnaveiðimann ársins hvernig hann tæki á því…

…nefnilega Örn Hjálmarsson sem löngum hefur verið kenndur við Útilíf. Hann fer í Veiðivötn, Arnarvatnsheiði og nánast hvert sem er, en hvernig tekur hann á síðsumrinu? Svar hans var eftirfarandi: „Jah stórt er spurt ,mín reynsla er að bleikja heldur sig nær uppsprettum og þar er gaman að nota þurrflugur eða litlar flugur no 14, það hefur virkað hjá mér.Eins og menn þekkja eru oft smá flugur að klekjast út á þessum tíma þá er um að gera að kasta á upptökin og finna einhverja flugu sem að virkar. Ég var að koma úr Hraunsfirði og veiddi vel með þessari aðferð. Það eru vötn eins og Hraunsfjörður, Litlisjór og Hlíðarvatn sem  geta komið vel til seinnipart sumars. Flugurnar sem gefa mér best eru Langskeggur, Krókur, Pheasant tail og Dísa í votflugum. Þurrflugur sem eru í uppáhaldi á þessum tíma eru Greenvells Glory no 18, Iron blue dun nr 18,  Cream variant nr 18  og Adams irresistible.“