Þetta er allt sama hafið

Glímt við lax í Selá.

Laxavertíðin 2026 stefnir í að verða all nokkuð betri heldur en hörmungin í fyrra. Gæðunum er þó all verulega misskipt og margar ár stefna í að verða litlu betri en í fyrra, eða í það minnsta með lítinn bata á sama tíma og aðrar eru á flugi.

Af hverju ætli það sé? Það er t.d. eftirtektarvert að á sama tíma og Selá og Hofsá eru á rólegu nótunum og ná tæplega héðan af að komast nærri bærilegum tölum síðasta sumars, þá er veisla hinu megin við heiðina, Jökla komin með glæsilegt met þrátt fyrir erfiða byrjun, og stefnir hraðbyri í að losa 2000 laxa múrinn.

Gísli Ásgeirsson er framkvæmdastjóri 6Rivers sem að hefur umsjón með flestum fallvötnum Norðausturlands. Hann er með athyglisverðar pælingar . „Hvað Selá og Hofsá varðar, þá er eitthvað eftir af vertíðinni og maður veit ekki hvernig þetta fer, en þær gætu skotist í 7-800 laxa sem er undir síðustu sumrum, en engin neyð. Það vantar smálax hjá okkur. Ég held að það sé að verða ljósara með hverju árinu sem líður, að það eru gæði búsvæðana, gæði seiðanna og almenn gæðameðferð á ánum sem skiptir sköpum. Og búsvæðin? Hvað væri Langá án sinna stiga, Laxá í Kjós? Selá? Eða Miðfjarðará, hún logar þessa daganna, öll búsvæðin þar og utanumhaldið síðustu árin skipta að mínu viti sköpum. Ég held að það sé kominn tími til að slaka á þessu tali um hafið og ástandið þar. Þetta er allt sama hafið sem þessi seiði ganga út í. Samt standa sumar ár sig betur en aðrar, sumar á fínu róli, jafnvel yfir væntingum, aðrar lakari. En allt er það sama hafið sem tekur við seiðunum.

-Okkur langar að gera fleiri laxastiga. Þetta hefur svínvirkað fyrir okkur í Miðfjarðará í Bakkaflóa og á teikniborðinu er stigi í Kverkárfoss, Kverká er hliðará Hafralónsár, sem hefur falleg búsvæði sem ekki hafa nýst. Okkur langar líka að setja stiga í fossinn í Hofsá. Þar er andstaða þannig að við sjáum hvernig það fer. Og svo er líka enn einn faktorinn sem er að verða æ ljósari. Ef við tökum Hofsá og Selá, þá sást lítið af lóm, skarfi og fiskiöndum fyrir nokkrum árum. Nú eru þessir fuglar út um allt og taka gríðarlega tolla af ungfiskinum. Það þarf að finna leiðir til að kljást við það án þess að setja í gang villta vestrið,“ sagði Gísli.

Og eitt svona í lokin, það er farið að bera á „the big boys“, í gær kom t.d. 102 cm úr Laxárholti í Stóru Laxá og annar jafn langur úr Skógarhvammshyl í Hofsá. Það verða eflaust fréttir af fleirum á næstu dögum og vikum.