Jújú, það er eitthvað að gerast. Þeir litlu eru að ganga og talsvert af þeim víða. Enn of snemmt að hrópa húrra of hátt, en veiðimenn kunna að gleðjast yfir litlu. Vonandi er þessi gusa forsmekkurinn…

Fyrir utan Jöklu, sem fór loksins í gang með stæl, þá er Þverá/Kjarrá aðalstjarnan. Þar var 302 laxa vika sem er hreint helvíti gott miðað við gang mála annars staðar. Á pari við toppsumar. Óskandi að það gangi eftir. Ekki tímabært að sjá strax í hyllingum sumarið 2005 þegar metveiðin hafðist, 4165 laxar. En byrjunin lofar góðu. Ingólfur Ásgeirsson leigutaki árinnar í nafni Stara sagði þetta: „Frábærir dagar í Þverá/Kjarrá og mjög sterkt tímabili að ganga í garð. Í síðustu viku höfum við orðið vitni að, dag frá degi, sífellt sterkari laxagöngum . Eftir viku höfðu gestir okkar landað 302 löxum með háum tölum 2 SW laxa í aflanum. Þann 7. júlí lönduðu gestir okkar 96 löxum á einum degi. Sannarlega magnaðir dagar á Þveru/Kjarrá, á pari við “gullöld“ laxveiðiárinnar á Íslandi.“ Allir glaðir við Þverá/Kjarrá. Og mega það! Norðurá náði líka ríflega hundraðð laxa viku, 111 stykki þar. Á einstaka stað er þetta svona í áttina.
Annars staðar eru fregnir af smálaxagöngum og reytingi af stærri laxi, en sá fiskur þarf að koma fram betur í veiði til að eftir verði tekið. Í fyrra bar t.d. talsvert á því að talað var um stórar göngur, en þær komu ekki fram í veiði. T.d. í Elliðaánum. En, loksins, loksins tóku Rangárnar við sér. Ekki á neinum stórum skala, en það er farið að veiðast og þetta sögðu IO hjónin: „Það er mikið af Laxi að ganga þessa daganna og eru veiðimenn að sjá lax á öllum svæðum, Það er búið að vera líflegt á neðri hluta Ytri Rangár síðustu daga og þetta er allt að smella hjá okkur. Í gær komu 12 laxar á land og nokkrir misstir. Laxateljarinn í Ægisíðufossi er að telja 10-12 laxa á dag sl 3 daga en mun sennilega aukast mikið um leið og vatnið hitnar en það er mikið af fiski fyrir neðan Ægisíðufoss þessa stundina.“ Horfur sem sagt góðar.
Annars eru athyglisverðar tölur að vanda á angling.is þar geta menn séð svart á hvítu, að fyrir utan Þverá/Kjarrá, Jöklu og árnar á Norðausturhorninu, þá er þetta enn rólegt, hvað sem síðar verður. Lax að ganga vissulega og nú erendalsu vætutíð í kortunum á vestanverðu landinu. Það mun hjálpa til að hífa upp tölur.










