Reiknað með „rosalegri veiði“

Þessa myndu birtu IO Veiðileyfi frá mokveiðinni í Urriðafossi. Svo virðist sem glímt sé við tvo í einu....

Bíðum við, kannski er eitthvað að gerast. Einstaka laxveiðiá hefur verið þokkaleg það sem af er, en flestar á miklum hægagangi. Búið var að spá slælegum stórlaxagöngum, en þess betri smálaxagöngum. Enn er ekki útséð um hvort að það gangi eftir þó að einhver teikn hafi verið á lofti nýverið.

Einn af „rólegu“ stöðunum er Urriðafoss í Þjórsá þar sem júníaksjónin var langt frá því sem menn eiga að venjast þar. En fyrir degi síðan poóstaði leigutakinn IO veiðileyfi þessum pósti: „Eftir frekar rólegan Júnímánuð er brjáluð veiði í Urriðafossi þessa stundina og er búið að landa vel yfir 100 löxum sl 4-5 daga. loksinns er mokveiðin byrjuð og má eiga von að veiðin eigi eftir að vera rosaleg næstu 2-3 vikurnar, þar sem þetta byrjaði svo seint í ár.“ Það er aldeilis toppmál að lax mokist nú á land í Urriðafossi, en djarft skref að segja menn eiga von á rosalegri veiði næstu vikurnar. Eitt af undrum og staðreyndum laxveiðinnar er óvissan. En frábært að líflegar göngur hafi verið í Urriðafossi síðustu daga.
Aðrir staðir á Suðurlandi sem tekið hafa upp á því að gefa laxa eru t.d. Ölfusá að austan við Selfoss, Laugardælir í Ölfusá og svo heimavöllur Árna Bald í Ásgarði í Sogi. Stóra Laxá líka og nýtur þar síns snemmgenga stofns.
Eitt og annað berst einnig frá ám Vestan og Suðvestanlands, smálaxagöngur t.d. í Langá, Haffjarðará, Hítará og Hauku. Straumur er stækkandi og er ekki í hámarki fyrr en um miðjan mánuð. Kannski að það kvitti eitthvað undir hversu hægt og seint allt saman hefur verið?