
Veiði hófst í Veiðivötnum 18.6 síðast liðinn. Enn eru ekki komnar vikutölur á Veiðivatnavefinn, en ljóst af tveimur FB síðum sem tengjast vötnunum, svo og samtölum við menn og konur sem hafa verið á svæðinu að veiðin hefur verið lífleg á köflum, margir lent í góðum skotum og af öllum myndum að dæma er fiskur í góðu ástandi eftir veturinn.
Á Veiðivatnavefnum stendur þetta: „Ástand lífríkisins í Veiðivötnum er heldur lakara en undanfarin ár. Vorið var kalt og ís nýfarinn af Litlasjó og Grænavatni. Vatnsstaðan er hærri en á síðasta ári. Rúnar (einn umsjónarmanna) eru búinn að hefla og lagfæra allar leiðir á vatnasvæðinu nema í Skyggnisvatn. Vöðin eru góð en sem fyrr ekki fær venjulegum fólksbílum.“ Annars staðar kemur fram að vöðin séu vissulega góð, en frekar mikið í þeim sem stendur. Þá sé skafl nokkur sem veiðimenn sækja sér kælingu fyrir aflann, enn myndarlegur og gæti tórað eitthvað fram í júlí, með þeim fyrirvara að nokkrir hlýindadagar geta snarbreytt öllu slíku.
En gaman verður að sjá fyrstu vikutölur, því vissulega höfum við hér á VoV heyrt all nokkrar skemmtilegar veiðisögur af svæðinu, t.d. frá Stóra Fossvatni, Litlasjó, Hraunvötnum og Grænavatni. Enn fremur Snjóölduvatni sem er fyrst og fremst bleikjuvatn, en framan af veiðist þar gjarnan nokkuð væn bleikja. Þegar líður á ber meira á smælkinu hins vegar, en enn er ekki komið að því.









