Smálaxar strax að sýna sig

Glæsilegur fengur úr Blöndu. Myndin er frá Fish Partner

Nokkrar þekktar ár hafa opnað nú í vikubyrjun og hefur gangur mála verið á ýmsa vegu. Athyglisverðast þykir okkur þó að frá tveimur verstöðvum bárust fregnir af smálöxum í aflanum. Spáð hafði verið rýru stórlaxasumri, en þeim mun betra smálaxasumri. Gæti þetta verið vísbending um að það gangi eftir?

Einn af tveimur sem veiddist í opnun Laxár í Leirársveit var smálax og tveir af tólf á fyrstu vakt í Kjarrá sömuleiðis og elstu menn muna varla að slíkt hafi átt sér stað í opnun þar efra. Annars hafa menn aðallega verið að kroppa upp stórlaxinn og opnun bæði Þverár og Kjarrár, sem eru raunar sama áin, var mjög „sólid“. Hollið í Þverá með 25 og fyrsta vakt í Kjarrá 12. Þetta er líkt og víða annars staðar þar sem fiskur hefur verið að ganga ósnertur síðustu tvær vikurnar. Óskandi að Þverá/Kjarrá haldi þessum dampi, en allt um kring, þar sem opnað hefur verið, hefur raunin verið önnur, flott opnun en svo allt í hægagangi. T.d. í Norðurá.

Fallegri hrygnu sleppt í Blöndu í vikunni. Myndin er frá Fish Partner.

Annars staðar þá veiddust 6 stykki á fyrstu vakt í opnun Miðfjarðarár og nokkuð líflegt þar, fiskur að veiðast í þremur af fjórum ám í kerfinu og mál manna að þetta liti betur út en í opnun í fyrra. Óskandi, en tíminn leiðir það í ljós. Segja má að á óvart hafi komið að enginn náðist á land á fyrsta degi í Laxá í Kjós. Lax sást víða og menn settu í nokkra, engum auðnaðist þó að landa feng sínum. Það stendur þó tæplega lengi.

Annars er stóra fréttin kannski sú að menn eru nú að landa löxum á flestum vöktum í Blöndu. Hún byrjaði vægast sagt agalega, en það er lax að ganga núna. Og annað árið í röð er áin að stympla sig inn sem úrvals silungsveiðiá með bæði urriða og bleikju. Rígvænum fiskum í bland.