Ísklærnar að gefa eftir

Auður Ösp Jónsdóttir með 80 cm dreka af Bökkum í Ytri Rangá. Frábærlega vel haldinn af vorfiski að vera. Myndirnar eru báðan frá IO Veiðileyfum.

Svæðin eru að opnast úr ísklónum þessaa daganna, jújú, hvert óveðrið af öðru, en hlýnandi veður. Ergo…vorið komi. Sannast best á fréttum af Leirá, sem var föst í klakaböndum þegar átti að opna 1.apríl. En nú fljóta flekarnir óðum til sjávar og fyrstu fiskarnir komnir á land.

Harpa Hlín með eitt verulega flottann…

Þetta mátti sjá á heimasíðu IO Veiðileyfa í dag, Harpa Hlín, einn eigenda IO með svakalegt tröll. Margir rosalega vænir í þessari litlu sprænu. Þar verður veisla næstu daga, því að það á ekki að kólna aftur í bráð. Þá eru Laugardælirnir hennar Kollu í Veiðibúð Suðurlands ekki á förum og bíða veiðimanna. Fregnir af þeim stærsta í vor komu frá Ytri Rangá, birtingur upp á 95 cm og 45 cm í þvermál. Sama dag, annar 80 cm.

Fréttir hafa og borist frá Tungufljóti og ýmsum svæðum þar sem staðbundni urrðinn er aðal málið, t.d. ýmis svæði í Hólaá. Heyrðum meir að segja um páskana af manni sem fór út í rokið við Vífilstaðavatn, fann glufu í ísnum og fékk þrjá þokkalega urriða. Allt hægt og nú þegar vorið stymplar sig betur inn fer allt á meira flug. Svartþrestir syngja nú um alla borg, sílamávar sveima og lóur og tjaldar trítla á Álftanesi. Vetur að kveðja.