Líflegur júlí í Djúpinu

Vænn la úr Hvannadalsá. Myndin er fengin hjá veida.is

Laxveiðiárnar við Djúpið hafa verið í lægð síðustu sumur eins og flestar ár um land allt. Júlí hefur samt verið með besta móti í samanburði og gefur fyrirheit um að vertíðin verði betri í ár en þau síðustu.

Fréttir úr ám þessum berast sjaldnar inn á borð, enda eru þær ekki á viðmiðunarlista angling.is. Þetta eru þó kunnar laxveiðiár, Laugardalsá, Langadalsá og Hvannadalsá.  SVFR er með Laugardalsá og þaðan hafa borist fréttir af „skotum“. Engar tölur um það höfum við þó. Hins vegar er veiðileyfavefurinn veida.is, sem er undir stjórn Kristins Ingólfssonar, með holl til sölu í hinum ánum tveimur og heldur að auki úti fréttaveitu af þeim svæðum sem vefurinn selur leyfi í. Þar kemur fram að nýlegt holl í Langadalsá hafi verið með 11 laxa og fleiri holl farið sátt heim, en veður hafi þó stundum sett strik í reikninginn. Um Hvannadalsá stendur á vefnum, að þar hafi júlí verið sá líflegasti í áraraðir. Þetta er tveggja stanga á og hollin oftast að fá 4-6 laxa yfir tvo daga, sem er ekki slæmt miðað við að áin er ekki í fremstu röð og verðlögð eftir því