Út er komið jólablað Sportveiðiblaðsins og er að vanda glæsileg jólagjöf til veiðimanna. Kennir margra grasa í blaðinu.
VoV er búið að stúdera nýjasta tölublaðið, skoða flest og lesa margt. Einn hæst að okkar mati ber viðtal Eggerts Skúlasonar við Birgi Gunnlaugsson, veiðimann á sjötugsaldri sem haldinn er banvænum sjúkdómi sem veldur því nú að næsta sumar mun honum ekki auðnast lengur að stunda sína hjartfógnu íþrótt. Í viðtalinu ræðir Birgir opinskátt um veikindin, veiðiferilinn og síðustu veiðiferðirnar, í Grímsá og Langadalsá við Djúp á nýliðnu sumri, hornsteina hans um árabil. „Veiðin kvödd“ er fyrirsögn viðtalsins.
Fleira fróðlegt og skemmtilegt er þarna að finna, t.d. grein um veiðifélaga eftir Erling Ingvason og skemmtilega frásögn um veiðiklúbb ungra kvenna sem gera út á hreindýr. Annar er bara að fletta og finna hvað kallar hæst til lesandans.










