
Vikutölur angling.is komnar í hús og haustbragurinn verður æ meiri. Veiði lokið í slatta af ám og hinar næstum að klára, nema sleppitjarnarárnar á Suðurlandi, óhætt að veiða í þeim langt fram eftir október. Á heildina litið er þetta slakt sumar, vægast sagt, en nokkrar undantekningar er að finna. En sumarið 2023 verður ekki aðeins í minnum haft fyrir slaka laxveiði, heldur mikið inngrip hnúðlaxa og norskra eldislaxa. Stórhætta þar á ferð og sjúkur farsi á ferðinni einkum hvað varðar þá norsku.
En þessi vikulega frétt okkar fjallar um gang mála í samskiptum villtra laxa við veiðimenn. Við erum með fjórar nýjar staðfestar lokatölur, alls þá sjö, en frá þeim fyrstu greindum við fyrr í vikunni. Rangárnar eru að sjálfsögðu lang efstar í tölum en höfðu nú sætaskipti í vikutölum, þ.e.a.s. Eystri Rangá var nú talsvert hærri en Ytri áin.
Þetta eru ekki sérlega stórar tölur úr Rangánum miðað við tölur síðasta sumars og sumra. Og þessi afli kemur á urmul af stöngum. En hæstar eru þær hvað sem öðru líður. Skoðum statistíkina í röðinni hér að neðan.

Ef við síðan skoðum nýjar staðfestar lokatölur þá er Selá í fimmta sætinu með 1234 laxa sem er 70 löxum meira en í fyrra, sem þótti alveg hreint ágætis útkoma. Selá er auk þess ein örfárra áa sem að gáfu betri veiði í sumar en í fyrra. Hofsá er með 1088 laxa, sem er ekki staðfest lokatala og vantar 123 laxa til að jafna síðasta sumar. Samt verður ekki annað sagt en að þetta sé góð útkoma í Hofsá sem, þangað til í fyrra, hafði farið um nokkurn öldudal. Þverá/Kjarrá, sem er í þriðja sætinu með 1306 laxa er 142 löxum undir afla síðasta sumars. Það var rétt þokkalegt miðað við hvað búast megi við, þannig að eftir alla þessu löngu og skæðu þurrka, má kalla útkomuna varnarsigur. Þá er það fjórða nýja lokatalan, Eliðaárnar sem gáfu 625 laxa. Mörgum sögum fór af stórum göngum í árnar framan af sumri, en þurrkar og heitir dagar og vikur slógu allt niður. Batinn sem átti að koma með svalari tíð og haustrigningum kom að vísu, en ekki af þeim krafti sem vonast var eftir.
Kíkjum nú á röð efstu áa. Fyrsta talan er talan miðað við miðvikudagskvöldið 20.9, næsta tala er vikuveiðin og þriðja talan, sú í sviganum er heildarveiðin frá 2022.
Ytri Rangá ásamt Hólsá V. 3133 – 163 (5086)
Eystri Rangá 2204 – 238 (3807)
Þverá/Kjarrá – loka 1306 – 19 (1448) (ekki heil vika)
Miðfjarðará 1273 – 74 (1522)
Selá – loka 1234 – 0 (1164)
Hofsá – loka 1088 – 79 (1211)
Norðurá – loka 1087 – 0 (1352)
Haffjarðará – loka 905 – 0 (870)
Laxá í Aðaldal 685 – 53 (402)
Langá á Mýrum 663 – 70 (1077)
Laxá á Ásum 660 – 30 (820)
Víðidalsá 633 – 34 (810)
Elliðaárnar – loka 625 – 12 (798)
Grímsá 616 – 53 (827)
Laxá í Dölum 533 – 97 (761)
Laxá í Leirársveit 500 – 46 (804)
Jökla 467 – 11 (803)
Laxá í Kjós 448 – 43 (1017)
Skjálfandafljót – loka 423 – 0 (367)
Hólsá austurb. 422 – 6 (403)
Vatnsdalsá 367 – 23 (415)
Blanda -líklega loka 359 – (577)
Haukadalsá 342 – 18 (380)
Straumfjarðará 342 – 41 (374)
Hítará 1 og 2 336 – 35 (708)
Hafralónsá líklega loka 333 – 2 (388)

Við förum ekki neðar að svo stöddu, en vert er þó að geta, að hér rétt fyrir neðan á þessum lista er á sem flýgur gjarnan undir radarinn, Fnjóská. Þar kemur á daginn að áin er ein af örfáum ám sem farið hafa yfir heildartölu sína frá í fyrra, hefur nú gefið 319 laxa, en 257 allt síðasta sumar.
Að öðru leyti segja þessar tölur alla söguna. Svona almennt séð er víðast minna af laxi heldur en allra síðustu sumur og vond skilyrði bættu ekki úr skák, kuldar framan af síðan hitar og þurrkar. En kuldi, hiti og þurrkar eru auðvitað ekkert nýtt í veðurflóru laxveiðimanna á Íslandi, en einhvern vegin var allt ýktara nú og auk þess víða minna af laxi. Og veiðimenn sem eru „gamlir í hettunni“ hafa all nokkrir sagt í samtölum við VoV, að nú orðið sé einfaldlega talsvert minna af laxi í ánum heldur en hér fyrrum er heildartölur voru oft og tíðum mun hærri en nú, þrátt fyrir viðvarandi og árlega kulda, hita og þurrka. En það hafa alltaf verið sveiflur í laxveiðinni og við verðum að vona að kúrfan fari að færast upp aftur.









