
Það er svona ýmislegt að gerast á „bökkum vatnanna“, þegar komið hafa rof í éljagang og snjókomu og menn hafa pakkað drónunum í töskur sínar, þá hafa fiskar víða verið að taka, enda kunna menn orðið á vorbirtinginn.
Okkur er voða mikið umhugað um Laugardæli sem Kolla í Veiðibúð Suðurlands heldur utan um. Einfaldlega vegna þess að þar eru leyfi laus og kost ekki báða handleggi og annan fótinn á sama tíma og svæðið er fallegt og með mörgum girnilegum veiðistöðum. Í dag var t.d. aðeins einn að veiðum og var bara í klukkustund og dugði til að landa falegum fiski við Ketilbrot.

En svæðin hafa verið að gefa þrátt fyrir að tíð hafi verið rysjótt. T.d. Geirlandsá sem kemur ekki á óvart eftir að drónamenn tóku þar myndir og settu allt á annan endann.
En allt þetta skýrist betur, enn eru umhleypingar í kortunum þannig að allur gangur verður á þessu enn um sinn. En góðu dagarnir munu gefa. Og urriðinn, sá staðbundni….við höfum heyrt af fólki sem hefur skroppið frá Útey, Laugardalshólum og víðar í Hólaá. Stoppað stutt út af veðri, en fengið fína veiði, mest á litlar straumflugur.
En nú fer ísinn brátt að hverfa af vötnunum og þá vaknar hjá okkur á VoV Meðalfellsvatn. Síðustu ár hefur komið í ljós að þar dvelur fullt af birtingi yfir veturinn, enda vatnasvæði Laxár í Kjós og Bugðu ríkt af birtingi. Það eru veiðimörk fyrir hversu nálægt ósi Bugðu má fara og ber að virða það. En inni á svæði því sem Veiðikortið teflir fram eru steinar í vatninu, sem standa upp úr, í góðu kastfæri. Á haustin hoppa þar oft laxar, en á vorin vitum við til að þar hafi menn sett í birtinga. Gjarnan notað spón, en flugan er örugglega fín í þetta líka. Þetta væri alveg skoðandi fyrir handhafa Veiðikortsins.









