Fiskur að ganga víða – annars lítið að frétta

Ragnar Guðmundsson með 101 cm hæng úr Hamarshyl í Hrútafjarðará. Laxinn tók lítinn svartan Frances keiluhaus.

Það kom berlega í ljós í síðustu vikutölum LV að upphaf laxavertíðarinnar hefur ekki slegið í gegn og tónar illa við spár sérfræðinga sem voru alveg hreint vel sáttir við útlitið. Og nú eru komnar nýjar tölur frá LV og varla verður kveðið við betri tón, miðast við 15 júlí, sannkallað prime time. Þó spjarar Norðausturhornið sig ágætlega og það hafa hlaupið bærilegar smálaxagöngur í sumar á á vestanverðu landinu.

Fallegur Langárlax. Myndina fengum við hjá Lax-á/Árna Beldurssyni.

Það er stutt síðan að stórveiðimaðurinn Árni Baldursson var að „gestgjafast“ með holl í Langá, er nú kominn vestur um haf með viðkomu í Tungufljótinu sínu. Hann sagði að Norðausturhornið toppaði önnur svæði, göngur gerðust líflegar víða á Vesturlandi, en enn væri dauft á Norðurlandi og á Suðurlandi. Tvær ár sem sérstaklega hefur verið tiltekið að hafi fengið frísklegar göngur eru t.d. Elliðaárnar sem bvoru með 99 laxa viku þrátt fyrir að stóran hluta vikunnar væri veitt í hitabylgju og fiskur að taka grannt. Þar með voru Elliðaárnar komnar í 211 laxa. Tiltekin hefur einnig verið Langá, en þar sagði Árni að þrátt fyrir sterkar göngur í kringum strauminn á dögunum væri erfitt við að eiga, laxinn tæki svo grannt. Enda er vikan aðeins að skila 66 löxum og 123 í það heila. Ekki gott, ekki gott. Ef við tökum annað dæmi af Vesturlandinu má nefna Laxá í Kjós, 68 laxa vika þar, erfitt vegna aðstæðna en fiskur að ganga. 137 laxar þar.

Júlíus Jónsson, eða Júlli í Nóatúni með einn glæsilegan úr Svalbarsá í Þistilfirði, en hún er ein af örfáum ám í landinu sem hefur gefið meira en á sama tíma í fyrra. Myndina fengum við frá Hreggnasa.

Blanda komin á yfirfall

Smá stikkprufa á tölur af Norðurlandi lofar ekki góðu. 56 laxa vika og 156 í það heila í Miðfjarðará og í Vatnsdalnum, 16 laxa vika og 53 í það heila. Og til að auka á drungann, komið yfirfall í Blöndu, sem er með allra fyrstu skipunum og norðaustur í Jöklu er Þröstur karlinn eflaust farinn að sofa illa á nóttunni út af yfirfalli úr Hálslónni. En kannski verður heppnin með eins og í fyrra. En mikið hlýtur að taka á taugarnar að rekja jafn spennandi og frábært „projekt“ og Jökla er, með þetta helvíti ævinlega hangandi yfir sér.

Ef að við lítum á „toppinn“ sem er frekar villandi lýsing þar sem víða í þeim ám er veitt á miklu fleiri stangir en í öðrum sem eru á svipuðu reki, má nefna að Þverá/Kjarrá fór í annað skiptið í röð í ríflega hundrað laxa holl147 þar og 509 í það heila. Norðurá nældi sér í sitt fyrsta hundrað plús holl, 122 og þá 347 í það heila.

Ef við skoðum önnur svæði, þ.e.a.s. landshluta þá situr Urriðafoss í öðru sætinu og byggir á hörkufínni byrjun. Veiðin tók hins vegar hressilega dýfu skv angling.is, aðeins 21 æi vikunni og þá 470 í það heila. Og á Suðurlandi er og að finna Rangárnar sem að angling.is/LV hefur þetta árið kosið að setja í annan flokk. Stóri flokkurinn er „Villtur lax“, hinn „Gönguseiðasleppingar. Hvað sem mönnum finnst þá eru þetta samt laxveiðiár, bara með öðrum formerkju. Og eftir fínt start sem síðan dalaði, þá er nú sæmilegasti skriður á Ytri Rangá sem skilaði 198 laxa viku og hljóp þá í heildina í 402. Eystri er langt á eftir, skilaði aðeins 66 í vikunni og þá 179 í það heila.

Annars eru við bara að leika okkur með tölurnar. Þær eru allar á angling.is, margfalt meira en við erum að stinga út úr. En heilt yfir: Norðausturhornið að skera sig úr. Góðar göngur hér og þar, en tölur enn á heildina litið litlar og lágar.