Hverju mun ósarannsókn við Iðu skila?

Veiðigarpurinn landskunni Árni Baldursson að glíma við einn í Straumunum...í Hvítá. Myndin er frá Lax-á.

Afskaplega áhugaverð deila geisar nú í uppsveitum Árnessýslu þar sem landeigendur við Stóru Laxá hafa farið þess á leyt að ós árinnar við Hvítá verði endurmetinn. Hugmynd þeirra er að innlima hina frægu Iðu inn í Stóru Laxá.Unnið er að gerð þessa mats og verður áhugavert að sjá og lesa niðurstöðuna, því hún gæti vakið upp alls konar spurningar.

Stóra Laxá er auðvitað ekki eina bergvatnsáin sem rennur út í jökulá. Það gerir málið mun áhugaverðara. En hvar endar bergvatnsáin og hversu lengi heldur hún nafni sínu eftir að vatnið er tekið að blandast? Viðmiðið er þar sem bergvatnsáin fellur með straumi sínum út í kökulvatnið. En þetta er loðin pæling.

Í Stóru Laxá er nú í gangi mikil áhersla á að vernda laxastofn árinnar, á það er bent af mörgum að netaveiði í Ölfusá og Hvítá tekur mikinn toll og eigendur og leigutakar Stóru treysta því ekki að vel sé farið með laxinn á Iðu sem, er fornfrægt og gjöfult veiðisvæði sem þekkt er m.a. fyrir stórlaxa sína. Því vilja þeir ná Iðunni inn í Stóru Laxá og hafa deilurnar verið , vægt til orða teki…hatrammar og stundum enda með heimsókn lögreglu.

En ef málið er skoðað þá vakna sem fyrr segir spurningar. Tannastaðatangi er t.d. að öllu jöfnu nefndur sem svæði í Soginu. En í Borgarfirði eru Brenna, Straumar, Skuggi og Svarthöfði kenndir við Hvítá þó að veitt sé í tæru vatni Þverár/Kjarrár, Norðurár, Gljúfurár, Grímsár, Reykjadalsár og Flóku. Í tilviki Brennu og Skugga er sami leigutakinn og hefur Þverá/Kjarrá og Grímsá. Veiðisvæði skugga nær meira að segja talsvert uppp með Grímsá, en svæðið samt kennt við Hvítá. Öðru máli gegnir um Norðurá/Gljúfurá og Strauma. Rafn Valur Alfreðsson er umboðssali fyrir bændur við Norðurá, Gljúfurá er á hendi SVFR, en áin leggur líka til vatn í Straumana. Og Starir eru með Straumana á leigu.  Og norður í Húnaþingi eru ármót Svartár og Blöndu ævinlega kennd við Svartá og ármótin eru raunar oft besti veiðistaðurinn í Svartá.

Það er sem sagt allur gangur á því fyrirkomulagi sem ríkir hér og þar. Þess vegna gæti úrskurðurinn við Iðu og Stóru Laxá skipt máli víða um land og útleiga margra toppsvæða mögulega farið í uppnám.