Hvert skal haldið…sérstaklega með börnin

Það er....fallegt við Vesturhóp

Sem betur fer er ekki allur fiskur lax. Við nennum því ekki og veltum líka fyrir okkur hvert gott væri að fara, t.d. með börn og barnabörn. Hér eru tveir staðir sem gætu gefið minningar.

Veiðifélagar í Vesturhópi
T.d. Vesturhópsvatn sem er meðal svæða sem SVFK hefur á sinni könnu. Þar eru þeir með frábæra gistiaðstöðu og vatnið er fullt af fiski. Það höfum við reynt hjá VoV, oft fengið að gista á lengri leiðum og stöngin er þá sett saman. Það er allur gangur á því hvað gerist í Vesturh´´opi. Við höfum verið þar og núllað, verið þar og fengið einn eða tvo og einu sinni fór ritstjóri út eina kvöldstund og mokaði upp 14 fiskum. Við vorum þarna um daginn, fyrir ríflega viku. Köstuðum í tvo tíma og fengum ekkert. En þeir voru að koma upp og sýna sig um allt. Vantaði bara að við hefðum tíma til að finna hvað myndi virka. Frétti svo síðar og fólk sem kom á eftir okkur veiddi bara helvíti vel og til hamingju með það. Við héldum áfram för okkar austur og fengum ógleymanleg miðnæturmóment í Fögruhlíðarósi.
Allt reynt, en ekki núna…
Brúará við Sel
Annað svæði sem við erum staðráðnir í að reyna í sumar er Brúará fyrir landi Sels. Þangað höfum við ekki farið enn, en heyrðum af því fyrir skemmstu að þar hefdði farið vanur maður og landað níu bleikjum. Og menn vita hvað Brúarárbleikjan er væn. Það er talað mikið um að fara með börn og barnabörn….kenna þeim, sýna þeim. Menn eiga ekki að hræðast Brúará. Aðeins að sýna henni virðingu. Flest veiðisvæðin eru þannig að það þarf lítið eða ekkert að vaða, enda er bleikjan þannig að hún virðist hafa yndi af því að liggja nærri bökkum. En textinn sem hér kemur, er afrakstru af spjalli um Sel í Brúará á kontór SVFR, sem er með svæðið á leigu.
Það eru mörg svæði til reiðu í Brúará og kannski eru Spóastaðir þeirra þekktast. Minna hefur farið fyrir landi Sels, sem er reyndar bakkinn á móti Spóastöðum. Brúará er ein af þremur stærstu bergvatnsám landsins, ásamt Laxá í Suður Þingeyjarsýslu og sjálfu Soginu. Hún er þekktust fyrir sína rígvænu bleikju og fyrrum var talsvert af laxi í henni. Hann hefur dalað síðustu áratugina, en laxavonin er samt enn góð um og eftir mitt sumar. Við þekktum eitt sinn karl sem veiddi mikið í Brúará, aðallega frá Seli og Spóastöðum. Hann einbeitti sér að bleikjunni og kunni orðið vel á hana. Síðan var hann alltaf tilbúinn með kaststöng með 18 gramma svörtum Tóbí. Of ef hann sá skvett eða stökk, var flugustönginni kastað út í móa, kaststöngin þrifin upp og spúninum dúndrað á skvettinn. Þessi karl hafði eitt sumarið tíu laxa upp úr krafsinu með þessari mögnuðu taktík. En svo er þarna líka staðbundinn urriði og fyrir kemur að sjóbirtingur sé að slæðast þarna líka.
Ritstjóri fór nokkrum sinnum í Brúará við Spóastaði hér fyrrum. Sá bleikjurnar lónandi skammt frá landi. Náði aðeins 2-3 og engri stórri. Var þá hugað að öðrum svæðum en nú kallar Brúará aftur. Enda er hún skammt frá höfuðstaðnum, er gríðarlega falleg og full af fiski.Og ódýr í ofanálag.  Það er fínasta blanda. Og prófa annað en Spóastaði í þetta skipti. Og það togar að fara í Sel þegar það hefur spurst að stöngum hefur verið fækkað úr 8-10 í 4. Þetta er fimm kílómetra bakkalengd og skyndilega nóg pláss.
Einhverjum kann að þykja það ókræsilegt að ekki sé hægt að aka um árbakkana. Fyrir utan að það er hollt að ganga og maður kemst í mun næmari snertingu við ána og umhverfið, þá eru bakkar hér sléttir og flestir staðir eru þannig að þó að áin sé stórfljót, þá liggur fiskur yfirleitt nærri, í það minnsta í fínu kastfæri án þess að þurfi að vaða neitt.  Enda er Brúará talin vera bæði barnavæn hér, sem og góður staður fyrir byrjendur.
Þegar við ræddum Selssvæðið á kontór svfr fyrir skemmstu voru nokkrir veiðistaðir nefndir þegar sögurnar fóru að fljúga, t.d. Markalækur og Ónefndur. Sá síðarnefndi sagður, fyrir utan bleikjuna, drjúgur í laxinn síðsumars. Þá var tíðrætt um stað með því skemmtilega og veiðilega nafni Felgan. Sem er að sögn langur og mikill staður þar sem mikið er af fiski…og út um allt.