Jökla átti eiginlega daginn

Hinn spænski Charles Gonzales með þann stærsta dagsins úr Jöklu í dag, 90 cm úr Hvalbak. Myndin er frá Strengjum.

Víða var opnað í dag og einnig í gær. Allur gangur eins og fyrri daginn. Jökla kannski stal senu dagsins, en það voru laxar á stjái víðar.

Þröstur Elliðason leigutaki Jöklu hafði sagt okkur frá því í aðdraganda opnunarinnar að lax væri búinn að sjást víða, t.d. við Steinboga. Síðar einnig í Hólaflúð. Síðasta sólarhringinn hafði hann þó smá áhyggjur af hvernig áin tæki á móti mönnum í morgun, enda rigndi í sólarhring. „Áin bólgnaði talsvert og við þurftum bara að bíða og sjá.“ Svo rann dagurinn upp og fyrsta vakt gaf sex laxa auk þess sem fleiri tóku og sluppu. Þá yljuðu laxar í Hólaflúð mönnum með því að elta hits hvað eftir annað með tilþrifum. Það var þó veiðistaðurinn Hvalbakur sem reyndist vera gullið í morgun, fjórir af sex komu þar, m.a. sá stærsti, 90 cm. Annar næstum jafn stór, 88 cm veiddist í Laxá, einni af hliðarám Jöklu og það er ekki beinlínis alvanalegt í júnímánuði. „Við erum auðvitað vongóð með opnunina og sumarið, aldrei þó að vita með yfirfallið,“ sagði Þröstur í samtali við VoV í aðdraganda þessa dags.

Baldur Hermannsson með fallega hrygnu úr Bjarnardalshyl í Sandá.

Talandi um Þröst og Jöklu. Þröstur er galdramaður. Hann setti Ytri Rangá á landakortið sem laxveiðiá og færði sig til þegar aðrir töldu sig þess albúna að halda því starfi áfram. Þá gerði hann Breiðdalsá að frábærri laxveiðiá, en þar dalaði með versnandi gæðum seiða sem voru í boði. Hann hafði í millitíðinni flutt sig í Jöklu og undir handleiðslu hans er áin ein besta sjálfbæra laxveiðiá landsins. Sjálfbær núna, en það þurfti seiðasleppingar til að koma henni af stað. En hún hefur alla burði til að bera sig sjálf. Nú er náttúruleg hrygning langt inn eftir öllum Jökuldal og áin í fínum málum. Náði sinni metveiði í fyrra þegar Þröstur fékk loks frið yfir heilt tímabil fyrir yfirfalli. Og eins og við boðuðum í síðustu frétt, þá höfum við lært nokkuð um Hrútuna, sem hefur verið í höndum Þrastar síðan árið 2000, nokkuð sem að er verulega athyglisvert og verður birt hér innan tíðar.

Ævar Sveinsson þurfti aðeins þrjár mínútur til að setja í þann fyrsta í Laxá í Dölum. Mynd frá Hreggnasa.

En það var ekki bara Jökla. Í Laxá í Dölum voru væntingar miklar og það tók Ævar Sveinsson aðeins þrjár mínútur að setja í fyrsta lax sumarsins, 80 cm hrygnu í Kristnapolli. Fleiri áttu eftir að bætast við eftir því sem við best vitum, en nákvæma tölu höfum við því miður ekki. Reyndar kom svo á daginn að þetta var eini laxinn. Sama gildir um Sandá, þar var Baldur Hermannsson fljótur að setja í og landa þeim fyrsta á sumrinu 84 cm á Frigga í Bjarnadalshyl. Fleiri komu á land, m.a. einn 100 cm.

Laxá á Ásum opnaði í gær og þar var núllað og kom á óvart því menn hafa séð til ferða laxa þar í heila viku að minnsta kosti. Eflaust bara smá hik, en opnanirnar hafa verið misjafnar frá einni á til annarar.

Síðan má segja að það sé „red alert“ í Elliðaánum þar sem sést hefur til tveggja sílspikaðra sjóbirtinga í teljaranum, annar 91 cm og hinn 99 cm! Hnötttóttar hrygnur og sú stærri eflaust langt yfir 20 pundum. Gaman að þessu.