Varmá lokað vegna mengunar

Sjóbirtingur, Varmá
Glæsilegur sjóbirtingur úr Varmá. Mynd -gg.

Opnun Varmár hefur verið frestað um óákveðinn tíma, en veiði átti að hefjast 1.apríl næst komandi. Á þessari stundu er ekki ljóst hvnær áin verður opnuð á ný. Ástæðan: Mengun.

Þessum tíðindum var hvíslað að VoV í dag og sjá, á vef SVFR er það staðfest. Það er orðað nokkurn vegin svona: Að Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur lesið úr sýnum er varða vatnsgæði og niðurstaðan sú að vatnsgæðin eru undir viðmiðunarmörkum vegna fráfalls (skólps) frá hreinsistöð Hveragerðis. Vinna að úrbóum mun vera að hefjast en ekki vitað hversu langan tíma það mun taka ána að hreinsast nógsamlega til að hægt verði að hefja þar veiðar. SVFR (leigutakinn), Hveragerðisbær og Veiðifélag Varmár standa saman að þessari lokun, en HES mun fjölga sýnatökum eftir því sem efni standa til vinnu við úrbætur vindur fram.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mengun setur svip á vatnsbúskap Varmár. Það hefur reyndar gerst all oft. Fyrir nokkrum árum rann til að mynda mikið af klór í ána frá sundlauginni í Hveragerði, sem drap fisk í stórum stíl neðan við frárennslið. Það sem bjargaði ánni var sá fiskur sem genginn var upp fyrir og lífríkið náði von bráðar vopnum sínum á ný. Og þannig mætti áfram telja. Varmá er skólabókardæmi um veiðiá í þéttbýli og þau umhverfisvandræði sem steðja að slíkum ám. Elliðaárnar eru annað slíkt dæmi.