Vertíð sem lofaði góðu í Vatnsá í Heiðardal endaði frekar endasleppt. En það var ekki vegna þess að það vantaði fiskinn. Þegar skilyrðin voru æðisleg þá vantaði veiðimenn! Og veiðin í vatninu var frábær að venju.
Ásgeir Arnar Ásmundsson, umsjónarmaður svæðisins sagði okkur að þetta hefði litið vel út lengi framan af. En svo: „Þetta endaði þannig að um leið og kólnaði í lok september datt þetta niður. Gerðist fyrr en ég vonaði. Svo þegar hlynaði aftur um 10 oktober þá fór hann að taka. En þá var ekkert veitt og því var þetta frekar slappt í lokin. Ca 170 laxar,“
Málið er að risasleppingum gönguseiða er lokið í Vatnsá. Sumarið 2008 veiddust þar 992 laxar og sumarið 2010 voru þeir 1051. VoV var á ferð bæði sumrin og áin var gersamlega stífluð af laxi. Áin ræður ekki við svona og í kjölfarið var dregið úr göngusei‘ðasleppingum. Enn er seiðum sleppt, en í miklu minna magni. Enn og aftur er áin fagra komin í 150-250 laxa gírinn með sínar misstóru sjóbirtingsgöngur.
Heiðarvatn er síðan kapítuli út af fyrir sig. Það er gríðarlega frjósamt vatn með bæði urriða og bleikju. Bleikjan getur verið væn og urriðinn svo sannarlega líka. Þá gengur sjóbirtingur og lax í vatnið. Einn og einn lax veiðist, en meira af birtingi og koma árlega yfir 80 cm flykki á land! Svo var einnig í ár.taðbundna bleikjan er af öllum stærðum, en þegar menn eru að moka fiski er ekki óalgengt að all nokkrir 40 til 55 cm fiskar séu í aflanum.










