Veiði hefur stóraukist síðustu vikuna, kraftmiklar smálaxagöngur og slangur af stórlaxi með í einum af stærstu straumum sumarsins. Veiðitölur hafa tekið mikinn kipp og margar ár eru komnar yfir sambærilega tolu síðasta sumars. Kíkjum aðeins…
Förum fyrst yfir töluhæstu árnar, skoðum vikuveiðina og síðan samanburð við síðasta sumar. Í sviganum er tala frá sama tíma í fyrra, en þar fyrir aftan vikuveiðitalan:
Þverá/Kjarrá 1186 (1001) – 343
Norðurá 834 (794) – 277
Urriðafoss 718 (531) – 531
Miðfjarðará 515 (749) – 195
Haffjarðará 487 (420) -167
Blanda 417 (514) -118
Ytri Rangá 401 (570) -193
Langá 346 (532) -150
Elliðaár 325 (345) -97
Grímsá 301 (361) -126
Laxá í Kjós 276 (251) -165

Stoppum hér. Ár í þriggja stafa tölu í viðbót eru tólf. Aðeins ein er komin yfir þúsundið, Þverá/Kjarrá. Það var sama uppi á teningnum í fyrra. Það er lítið mál fyrir lesendur að fletta uppá angling.is og skoða tölur, en okkur lék mest forvitni á að sjá hversu margar af þeim ellefu sem við höfum ekki nefnt eru með meiri veiði heldur en á sama tíma í fyrra.
Tökum þær hér fyrir í réttri röð, talan í sviganum er talan frá síðasta sumri:
Hvítá/Brennutangi 229 (168) *
Eystri Rangá 216 (145)
Laxá í Leirársveit 176 (143)
Laxá í Aðaldal 175 (171)
Laxá á Ásum 172 (242)
Hítará 156 (101) *
Flókadalsá 155 (192)
Laxá í Dölum 136 (92)
Víðidalsá 125 (230)
Vatnsdalsá 123 (150)
Haukadalsá 115 (117)
Stóra Laxá í Hreppum 102 (195)
Eins og sjá má þá er allur gangur á þessu. Við höfum hakað við tvær ár sem skera sig úr, Hvítá við Brennutanga, nefnum það vegan þess að Hvítá er með mun fleiri gjöfula staði og væri eflaust mun ofar á listanum ef að allir væru með, má nefna Straumana, Svarthöfða og Skugga. Þá nefnum við Hítará vegan þeirra náttúruhamfara sem þar hafa orðið vegan skriðufalla í ána. Miki log góð gengd var í ána og sá lax sem vill heim í sumar mun koma, en hver skilyrðin verða til að veiða í ánni liggur ekki fyrir. SVFR, leigutakinn, hefur mælst til þess við veiðimenn að sleppa öllum laxi í sumar til að áin og lífríki hennar fái að njóta vafans.
Litið yfir heildarmyndina þá virðist stóri straumurinn nú vera að skila sterkum smálaxagöngum. Dæmi getum við tekið um eina af minni þekktari ánum á Vesturlandi, Reykjadalsá í Borgarfirði. Hún err akin síðsumarsá, en samt hefur verið gríðarlega líflegt í henni að undanförnu, í aðdraganda straumsins. Hafa menn farið upp í að landa allt að 15 löxum á dag á tvær stangir og allt lúsugur smálax.










