Tölur þessar fundum við á angling.is og þegar fyrsta tala er skráð er kominn 15. júní, en veiðin hófst þar 5. júní. Á þessum tíu dögum voru skráðir 302 laxar eftir einstaklega líflega byrjun, einhverja þá bestu sem menn muna. En eftir 15. júní voru skráðar tölur eftir hverja viku veiðitímann á enda.

Dags. skráningarFjöldi laxaFjöldi daga í tímabiliVeiði á tímabiliFjöldi stangaVeiði pr. stöng á tímabiliVeiði pr. stöng pr. dag á tímabili
15.6.20163027
22.6.20165357233
29.6.20167627227
6.7.2016102072581418,42,6
13.7.20161300728014202,9
20.7.2016149271921413,72
27.7.2016168171891413,51,9
3.8.2016185871771412,61,8
10.8.2016202871701412,11,7
17.8.2016221771891413,51,9
24.8.20162244727141,90,3
31.8.20162295751143,60,5
7.9.20162330735103,50,5
14.9.20162356726102,60,4
21.9.201623867301030,4

Alls eru þetta  2386 laxar, en aðeins fjórum sinnum hefur veiðin verið meiri í ánni og í öll skiptin á síðustu árunum, eða 2015, metveiðin 4829 laxar, 2013: 2611 laxar, 2010: 2777 laxar og 209: 2413 laxar. Fyrir utan í sumar hefur áin aðeins þrisvar til viðbótar farið yfir 2000 laxa, 2011: 2032 laxar og síðan tvisvar á áttunda áratugnum, 1975 og 1978 þegar veidust  2363 og 2147 laxar. Á þeim árum var áin kolgruggug og þekktust fyrir ófyrirleitna og opinbera húkkveiði.

Mest er veitt á 14 stangir í Blöndu, en angling.is skráði þá tölu ekki inn fyrr en vikuna 6.-13.júlí, en í aðdraganda þeirrar viku voru öll svæði árinnar að verða virk eftir að lax gekk í miklum mæli óvenjulega snemma. Fram að því var mesta veiðin á aðeins fjórar stangir á neðsta svæði árinnar. Eins og sjá má af tölunum er þar ugglaust um einhverja mestu dagveiði á stöng sem fyrirfinnst hér á landi. Niðurröðun stanga ber þó að taka með í reikninginn, en frá 5.6 til 19.6 var aðeins veitt á stangirnar fjórar á neðsta veiðisvæðinu. Þar getur að líta óhemju dagveiði á hverja stöng á neðsta svæðinu. Þann 20.6 og til 5.9 eru komnar 10 stangir til viðbótar á svæðin þrjú þar fyrir ofan. Eftir 15.9 eru stangirnar svo aðeins tíu því þá er lokið veiðum á neðsta svæðinu.

Athygli vekur einnig að veiði dregst mjög saman fimm síðustu vikurnar og er samanlögð veiði þá aðeins 169 laxar, sem nær ekki einu sinni vikutölu vikunnar á undan, en þá voru 189 laxar dregnir á þurrt. Eflaust spilar hér saman yfirfall, dofnandi veiði neðst í ánni og slakari nýting stangardaga á efri svæðum.