Tröll úr Tungufljóti vestra

Hér er erlendur veiðimaður með mikið tröll og Faxi í baksýn. Myndirnar með þessum texta eru frá Lax-á. Mynd Lax-á

Laxinn hefur verið að skila sér í Tungufljót í Árnessýslu fyrr í sumar en venjulega, það er að bæta í og nú kom sannkallað tröll úr ánni, fiskur fast að meter.

„Flott stund fyrir hann Mike og glæsilegur hængur“ sagði Árni Baldursson leigutaki og umsjónarmaður árinnar, laxinn er augljóslega í 20 punda flokkinum og eflaust sá stærsti úr Tungufljóti það sem af er. Síðasta fimmudag var áin skráð hjá angling.is með 272 laxa. Í fyrra var heildartalan 338 laxar og við ætlum ekki að veðja gegn því að áin toppi sig frá síðasta sumri, því september hefur alltaf verið drjúgur í ánni.