Lax er nú farinn að ganga í nokkru magni í Tungufljót í Árnessýslu og myndu sumir segja að það sé afar snemmt fyrir þessa á sem hefur átt sínar bestu stundir á haustin eftir að reglulegar seiðalseppingar hófust fyrir nokkrum árum.
Á myndinni er Vala Árnadóttir með sérlega fallegan vorlax sem hún fékk neðan við Fossinn Faxa í vikunni. Hún á ekki langt að sækja veiðinæmnina, dóttir Árna Baldussonar sem er einmit leigutaki Tungufljóts. Lengra en að Faxa virðist laxinn ekki fara, það er fiskvegur í fossinum en lax sést lítt þar fyrir ofan. Þar má hins vegar hitta fyrir fín eintök af ísaldarurriðum.
Vikulegar tölur fyrir Tungufljót má nú finna á angling.is og í hádeginu mátti lesa að 36 laxar væru komnir á land. Frábær byrjun því aðeins hefur verið opið fáa daga og ekki alltaf einhver að veiða.










