Laxveiðin hefur farið líflega af stað, en hún er þó víðast hvar nokkru lakari heldur en á sama tíma í fyrra. Það gerir auðvitað að stórlaxagöngurnar sem komu snemma í fyrra voru miklu sterkari en núna. Á móti vegur að smálax er að koma snemma. Hér kryfjum við ítarlega vikutölurnar…

Þverá/Kjarrá vermir toppsætið með hæstu töluna, 408 laxa, en Urriðafoss í Þjórsá er með 365 laxa. Það fer alltaf allt eftir því hvaðan á hlutina er horft. Þverá/Kjarrá eru með góðar tölur, en þar er veitt á 14 stangir, einungis 2 stangir í Urriðafossi. Við skulum líta á statistíkina eftir síðustu veiðiviku, kryfja til mergjar og bera saman við sama tíma í fyrra.

Þverá/Kjarrá. Vikan gaf 152 laxa, vikan á undan 162. Alls voru komnir 408 laxar á land í gærkvöldi, en á sama tíma í fyrra voru þeir 461.

Norðurá. Vikan gaf 158 laxa, vikan á undan 103 laxa. Alls voru í gærkvöldi komnir 391 í bók. Í fyrra var sama tala 450. Eins og í Þverá/Kjarrá munar um stórlaxinn. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.

Urriðafoss í Þjórsá. Þetta magnaða 2 stanga svæði hefur algerlega slegið í gegn. Veiðimaður einn sem VoV hitti í dag og hafði heimsótt vini á svæðinu um helgina, sagði laxinn vera á mörgum hæðum og að vissir blettir „kraumuðu.“ Það var einhver pirringur í heimasíðu angling.is þar sem nánari upplýsingar áttu að vera fyrir Urriðafoss þannig að það eina sem við getum sett hér er 365 laxar veiddir í gærkvöldi.

Miðfjarðará. Vikuveiðin 101 lax, fór úr 170 í 271 á 6 stangir. Verið einstaklega líflegt í Miðfjarðará og hún er raunar býsna nærri sinni tölu frá sama tíma í fyrra, þegar 292 laxar höfðu komið á land.

Blanda. Síðasta vika skilaði 102 löxum og vikan á undan 60 löxum, heildartalan því komin í 228 laxa. Hér munar afar miklu á sama tíma í fyrra þegar, skv angling.is, voru komnir 762 laxar á land. Blanda er skráð með 4 stangir á angling, en við höfum heyrt að laxar veiðist nú upp eftir allri á, heildarstangafjöldinn er því orðinn virkur.

Haffjarðará. Vikan gaf 84 laxa sem er prýðilegt, áin fór úr 76 löxum í 160 stykki. En þetta er eins og í Blöndu, miklu lægri tala en á sama tíma í fyrra, 322 komnir í bók þá. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.

Elliðaár. Prýðis gangur í Elliðaánum, vikan þar að gefa 94 laxa á 4 stangir, fór úr 34 í 128. Sem er sama tala og á sama tíma í fyrra.

Flóka. Er á þokkalegu róli, var með 32 laxa viku, fór úr 26 í 58. 90 á sama tíma í fyrra. Þrjár stangir.

Laxá á Ásum. Byrjaði seint og fór ágætlega af stað. Vikan þar 31 lax og hækkaði úr 25 í 56. Líkt og annars staðar á Norðurlandi er smálaxinn ekki kominn í sama mæli og á Suðvestur- og Vesturlandi.

Hér vantar nokkrar ár, báðar Rangárnar t.d. en við getum aðeins unnið með það sem við höfum og þetta eru helstu árnar sem komnar voru með nýja tölu í gærkvöldi.Eflaust tínast a‘rr inn smátt og smátt og við bætum þeim inn eftir atvikum.