Silungsveiðin í algleymingi

Erlendur kappi með boltableikju í Ásgarði í Soginu. Myndin er frá Lax-á.

Silungsveiðin er víða komin á fljúgandi ferð og sums staðar eru menn að draga virkilega stóra fiska á land. Nefndir hafa verið staðir eins og Sogið, Brúará, Hólaá, Þjóðgarðurinn og Úlfljótsvatn. Og líklegir staðir eru að sjálfsögðu miklu víðar.

Sogið og Brúará eru nokkuð sér á báti með sínar stóru, stóru bleikjur. SVFR, sem er með Sel í Brúará á sínum snærum, sagði t.d. frá því í vikunni að menn hefðu veitt vel og mikið hefði sést af stórbleikjum. Vitnað var í „Ragga Danner“ og kom þar fram að best reyndist að nota púpur í stærðum 14-16. Nefndi hann Héraeyra, PT og Zebra Midge. Skoða má myndir af glæsilegum bleikjum á FB síðu SVFR. Í Soginu eru það  helst Ásgarður og Bíldsfell, en mest hefur borið á fyrrnefnda svæðinu sem Lax-á hefur í handraða sínum. Hjá Lax-á kemur fram að um 500 fiskar hafi veiðst í vor og að undanförnu hefði verið sérstaklega flott veiði og rígvænir fiskar. Þar eru menn einnig að setja í slangur af urriða. Þarna segja Lax-ármenn að púpurnar séu veiðnastar í stærðum 16-18 og eru týpurnar líkar því sem lýst var frá Brúará.

Þessar smáu púpur segja nokkra sögu um það hvers vegna sumir veiða meira en aðrir. Nokkra sögu, en ekki endilega alla söguna. Þ.e.a.s. að margir hafi ekki trú á því að nota svo smáar púpur. Það er hins vegar röng pæling sem sannast þegar bleikja eða urriði eru rist upp til nánara rannsaks á fæðuvali. Þar úir og grúir gjarnan af allskyns matvælum sem eru smærri einingar heldur en púpurnar sem nefndar eru. Mýflugulirfur, bobbar. Oftast í moldarlitum eða þaðan af dekkri. Þá eru ótrúlega margir sem draga fluguna of hratt inn. Á það líka við um yngra fólkið sem er með fluguna í flotkúlu.

En við höfum að undanförnu ítrekað heyrt af góðum skotum í Þjóðgarðinum á Þingavöllum. Fleiri bleikjur þar stærri en smærri, líkt og nýliðun sé ekkki alveg í lagi frekar en fyrri sumur, en margir eru hrifnir af því að fá færri fiska og stærri. Þarna hafa verið að veiðast upp í 60 cm bleikjur og það sama má segja um Úlfljótsvatnið. Og af því að við nefndum Hólaána, þá heyrðum við af erlendum veiðimönnum á vegum IO Veiðileyfa, sem fengu „nokkra tugi“ af bleikju á einum degi í ánni. Mikið af fiski þar, ekki kannski eins stór og í stóránum tveimur í nágrenninu, en fínum fiskum samt.