
Hið svokallaða urriðasvæði, ofan fossa í Ytri Rangá, hefur löngum lúrt á stórum fiskum. Svæðið hefur löngum flogið undir radarinn, en æ fleiri eru að kynnast því. Þarna er veiðin frekar fáir og stórir heldur en hið gagnstæða. Og þegar fiskar koma á land eins og þessi hér, þá er það á við marga smærri.
Sum sé, aðstandendur IO veiðileyfa segja svo frá í færslu á FB, með meðfylgjandi mynd: „Risa urriði var að koma á land á urriðasvæðinu í Ytri Rangá! Þessi risa urriði mældist hvorki meira né minna en 91cm og 48cm í ummál, alvöru tröll. Fiskurinn náðist á Mælabreiðu á stóran appelsínugulan Dýrbít.“
Veiðimaðurinn er titlaður Grétar Jóhannes og spurning hvort að hann gleymi þessum degi eða fiski á næstunni. Verður að teljast hæpið!









