
VoV hefur legið niðri síðustu vikur. Ekki evrið sérlega heppnir. Tvisvar hakkaðir og svo hrundi aðaltölvan og við tók löng og flókin björgunarvinna á gögnum, skjölum og myndasafni. Þetta er nú að komast í lag.
Þetta hefur komið á versta tíma, stór hluti besta laveiðitímans liðinn og við þurfum að endurstilla okkur. Hvernig við byrjum aftur. Ekki gengur að fara að rekja síðustu vikur, ánægjulegt þó að sjá að margar ár eru hressari en í fyrra þó ekki hafi verið úr háum söðli að detta. Fyrir okkur er einfaldlega árið núll. Við tökum einfaldlega upp þráðinn og ekki ólíklegt að lesendur verði varir við einhverja breytingu á efnistökum. Höfum verið með hausinn í bleyti á meðan við biðum viðgerða. Sjáum hvernig það fer, en gott að vera komnir til baka.









