Ekki vildi Ytri Rangá vera eftirbátur systur sinnar í austri. Ekki höfðum við fyrr sleppt fréttinni af 100 laxa degi þar en okkur barst til eyra að annar eins dagur hafi verið í Ytri Rangá!
Á FB síði Ytri Rangár sem finnst þó ekki undir því nafni, heldur undir heitinu West Rangá, kemur fram að í gær hafi verið fyrsti dagur sumarsins að aflinn færi í ríflega 100 laxa. Þar eru því ekki síður sterkar göngur en í Eystri og ekkert nema allt gott að segja um það










