Við höfum af og til greint frá því hvað fluguhnýtarinn og veiðileiðsögumaðurinn Sigurður Héðinn Harðarson, eða Siggi Haugur eins og hann er oft kallaður, er að bralla við væsinn. Hann hefur frumsamið ýmsar stórveiðnar flugur og gert sérviskulegar eigin útfærslur af öðrum, yfirleitt með frábærum árangri þegar á bakkann er komið. Hér að það nýjasta….

Viðurnefnið Haugur er tilkomið af flugunni hans Haugur sem hann nánast tíndi af handahófi af efnishaug á hnýtingarborðinu. En fleiri hafa komið, t.d. Von og fleiri. Já og Skuggi sem segja má að sé útfærsla Sigga Haugs á hinni frægu Sunray. Þær eru margar útfærslurnar af henni og eins eru fleiri flugur í aðalatriðum með sömu uppbyggingu, svo sem Kolskeggur og Collie Dog. Skugginn hans Sigga er með grænleitri slykju á búknum og það skilur hann í aðalatriðum frá SRS.

Skugginn hans Sigga hefur verið rífandi góður hvar sem hann er reyndur og er hann oftast hnýttur sem míkrótúba, misþungar útgáfur, og einnig sem venjuleg hárfluga á tvíkrók. „Ég hef verið að vinna í ákveðinni þróunarvinnu að undanförnu en svo, rétt fyrir svefn fyrir skemmstu, fór ég að hugsa um Skugga og hvernig gaman væri að búa fjölskyldu, gera fleiri útgáfur af honum. Fyrsta verk mitt þegar ég kom á skrifstofuna morguninn eftir var að negla þær saman, þær þrjár sem ég sá strax fyrir mér í svefnrofunum. Þetta tók enga stund, þær voru fullmótaðar í hausnum á mér og Skugginn er ekki lengi hnýttur. Úkoman var blár Skuggi, gulur Skuggi og appelsínugulur Skuggi sem ég sé fyrir mér sem haustflugu. Þessar frumútgáfur eru hnýttar á Mustad tvíkrækjur og þeir sem þekkja til Skugga sjá að ég hef bætt við dálitlu skeggi. Ekki ætti það að draga úr veiðninni og þær eru að fara að mokveiða þessar flugur, svo mikið er víst,“ sagði Siggi í samtali við VoV.