VoV fékk fréttatilkynningu frá Fish Partner í dag, þar eru aldeilis tíðindi og menn ekkert að grotna niður í stólunum. Mikið hefur verið talað um skort á nýliðun í veiðinni síðustu ár, Fish Partner ætlar ekki að sitja hjá og gera ekkert.

Svona hljóðar fréttatilkynning þeirra: „Fish Partner hefur stofnað Íslensku fluguveiðiakademíuna. Akademían er fræðslumiðstöð sem hefur það markmið að miðla þekkingu og reynslu til áhugamanna um veiði. Markmiðin eru einnig að auka nýliðun í fluguveiði með áherslu á börn og ungmenni og hópa sem eru í minnihluta í sportinu. Stofnun Akademíunnar er svar eigenda Fish Partner við lítilli nýliðun á undanförnum árum og takmörkuðu framboði af veiðitengdri fræðslu hér á landi.

Kjarnastarfsemi Akademíunnar er námskeiðahald og fyrirlestrar. Nú þegar liggur fyrir þétt dagskrá af námskeiðum og fyrirlestrum í vetur og eru þó nokkur til viðbótar í pípunum. Akademían er í samstarfi við Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar.

Af námskeiðum á dagskránni má nefna:
- Flugukastnámskeið þar sem allir kennarar eru með FFI réttindi
- Fluguhnýtingarnámskeiðfyrir byrjendur
- Ljósmyndanámskeið með Matt Harris
- Námskeið í stangarsmíðum
- Þurrfluguhnýtingar
- Að setja í þann stóra með Nils Folmer
- Opið hús til æfinga í fluguköstum
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin og Akademíuna er að finna á vef Akademíunnar á: https://fishpartner.is/akademia/










