
Angling.is tók saman vikutölur sínar og birti í dag. Miðast þó við 28.6. Tölurnar sýna að þó svo að í flestum tilvikum hafi aðstandendur verið sáttir með opnanirnar, þá hefur framhaldið verið alla vega. Athuga ber einnig þegar tölurnar eru skoðaðr, að árnar hafa vissulega verið opnar mis lengi.
Fyrst af öllu vekur athygli að Urriðafoss sé ekki efstur, sem hann hefur jafnan verið í júní síðustu árin. Þar byrjaði veiðin vel í byrjun júní, dalaði svo en hefur verið að koma hressilega til allra síðustu daga. Þetta er samt umtalsvert lakara heldur en í fyrra. Og það eru ekki sérlega margar ár með betri tölu heldur en á sama tíma í fyrra. Alveg þó nokkrar lakari.

Það eru þessar venjulegu vangaveltur í gangi, af hverju þetta og hvers vegna hitt. Tveggja ára lax virðist hafa gengið óvenju snemma, en náði kannski að dreifa sér meira snemma sumars og því ef til vill ekki veiðst í jafn ríkum mæli en ella. Þá hafa skilyrði í júní oft og iðulega verið veiðimönnum óvinsamleg. Kuldaköst, hitabylgjur, flóð og þrálát vestanátt á köflum. Allt dregur úr góðu gengi veiðimanna. Smálax sýndi sig víða snemma og þykir lofa góðu með öflugar göngur smálaxa. Einn straumur sem átti að skila smálaxi er afstaðinn og vissulega kom eitthvað af fiski, en tíminn mun sýna fram á hvernig fer.
Hér fara á eftir tölur úr efstu ám, fyrri talan er sú nýja. Seinni talan sýnir vikuveiðina, en VoV hélt til haga síðustu tölum. Af þessum tölum má sjá að einna líflegast er í Norðurá. Þá er vert að gefa Blöndu gaum, hún er með bata frá í fyrra, einnig Hítará, Víðidalsá og Eystri Rangá, úr hópi efstu áa.
Norðurá 246 118
Urriðafoss 225 59
Þverá/Kjarrá 118 41
Haffjarðará 93 64
Blanda 69 40
Hítará 53 24
Miðfjarðará 49 24
Víðidalsá 48 26
Eystri-Rangá 42 30
Nánari upplýsingar er að finna á www.angling.is









