Nokkrir harðir Víðidalskarlar hafa verið að velta fyrir sér kjálkabeini af laxi sem gæti hafa verið enn stærri en hvalurinn sem er uppi á vegg í veiðihúsinu Tjarnarbrekku, sá var veginn 16 kg á sínum tíma, eða 32 pund!

Þórður Sigurðsson póstaði þessari mynd á FB og greindi frá því að beinið hefði fundist við veiðistaðinn Dæli og væri líklega úr laxi sem var í ánni í fyrra og nokkrir hefðu náð að setja í. Meðal þeirra hafi verið Valgarður Ragnarsson og Bjarni Ákason. Stefán Kristjánsson blandaði sér í umræðuna og sagðist einnig hafa sett í laxinn. Þórður segir: Við bárum beinið saman við kjálkann á fiskinum í veiðihúsinu. Beinið var aðeins stærra.”
Laxinn á veggnum er engin smásmíði. Ragnar Gunnlaugsson fyrrum formaður Veiðifélags Víðidalsár, og með fróðari mönnum um málefni árinnar, fletti því upp á svipstundu í kollinum að Bandaríkjamaðurinn Ralph Peters hefði veitt laxinn árið 1987 í veiðistaðnum Mið Kæli.
Það er aldeilis gaman að því að svona stórir laxar skuli enn finnast hér á landi og síðustu sumur hafa nokkrir sem slagað hafa í 30 pundin veiðst í ám á borð við Laxá í Aðaldal og Vatnsdalsá. Við getum þá bætt Víðidalsá við.












