Við greindum frá því á dögunum að Icelandic Fly Fishermen hefðu tekið yfir rekstur og sölu veiðileyfa í Sunnudalsá í Vopnafirði að viðbættu efri hluta silungasvæðis Hofsár, sem hefur m.a. að geyma hinn þekkta Fellshyl. Hér er meira um svæðið.


Sunnudalsá er hliðará Hofsár og löngum hafa þær verið nefndar saman í veiðiskýrslum, Hofsá og Sunnudalsá, líkt og til dæmis Grímsá og Tunguá og Laxá í Kjós og Bugða. Þetta stafar af því að lengst af var Sunnudalsá svæði inni í skiptingu Hofsár. Sunnudalsá er forkunnarfagurt vatnsfall og engin spræna. Þá er hún glettilega góð laxveiðiá. Sigurður Héðinn hjá Icelandic Fly Fishermen sagði í samtali við Veiðislóð, að meðalveiði síðustu ára væri um 80-90 laxar, en bætti því við að ástundunin hafi verið afar misjöfn undanfarin ár en erlendir aðilar hafi verið með ánna á leigu og að hún hafi afar sjaldan verið veidd yfir heilt tímabil nokkur ár í senn.
Á árunum 2009 til og með 2012 var hún stunduð nokkuð vel og var sumarveiðin á bilinu 120 til 150 laxar þau sumur. Næsta sumar verða einungis tvær laxastangir í Sunnudalsá en heimild er fyrir fjórum stöngum. Ljóst er að stangirnar tvær munu hafa nóg að gera enda 75 veiðistaði í Sunnudalsá! Auk þess verður þriðja stöngin við veiðar á silungasvæði Hofsár frá ármótum Hofsár og Sunnudalsár og niður efri hluta silungasvæðisins.

Sunnudalsá er nokkuð köld að upplagi og því er veiðitími hennar frá hásumri og fram á haust. Fer eftir árferði hvenær rétta hitastigið kemur í hana og þess vegna er viðbótin við veiðisvæðið í Hofsá sniðugur leikur. Það er efra bleikjusvæði árinnar og getur verið mjög gjöfult og þar er líka laxavon, ekki síst í ármótum Sunnudalsár og Hofsár, ef að laxinn er ekki rokinn upp í Sunnuna. Þá er á þessu bleikjusvæði rómaður veiðistaður, Fellshylur, langur og líðandi.

Margir þekkja hann og einhverjir muna eflaust eftir sjónvarpsþætti sem Pálmi Gunnarsson gerði fyrir nokkrum árum og fjallaði um veiðiskap á silungasvæðum Hofsár. Megnið af þættinum fór fram við téðan Fellshyl þar sem Pálmi og félagar, m.a. Engilbert Jensen voru að draga hverja bleikjuna af annarri á þurrflugur, en einnig púpur sem þeir hnýttu á staðnum eftir að hafa velt við steinum í ánni og haft púpulífið sem þar fannst með sér í hús til að hnýta eins. Og auðvitað mokveiddist á þær pöddur.












