
Svæðin eru að opnast úr ísklónum þessaa daganna, jújú, hvert óveðrið af öðru, en hlýnandi veður. Ergo…vorið komi. Sannast best á fréttum af Leirá, sem var föst í klakaböndum þegar átti að opna 1.apríl. En nú fljóta flekarnir óðum til sjávar og fyrstu fiskarnir komnir á land.

Þetta mátti sjá á heimasíðu IO Veiðileyfa í dag, Harpa Hlín, einn eigenda IO með svakalegt tröll. Margir rosalega vænir í þessari litlu sprænu. Þar verður veisla næstu daga, því að það á ekki að kólna aftur í bráð. Þá eru Laugardælirnir hennar Kollu í Veiðibúð Suðurlands ekki á förum og bíða veiðimanna. Fregnir af þeim stærsta í vor komu frá Ytri Rangá, birtingur upp á 95 cm og 45 cm í þvermál. Sama dag, annar 80 cm.
Fréttir hafa og borist frá Tungufljóti og ýmsum svæðum þar sem staðbundni urrðinn er aðal málið, t.d. ýmis svæði í Hólaá. Heyrðum meir að segja um páskana af manni sem fór út í rokið við Vífilstaðavatn, fann glufu í ísnum og fékk þrjá þokkalega urriða. Allt hægt og nú þegar vorið stymplar sig betur inn fer allt á meira flug. Svartþrestir syngja nú um alla borg, sílamávar sveima og lóur og tjaldar trítla á Álftanesi. Vetur að kveðja.









