Vó…..nærri 300 fiska opnun!

Myndin er frá Torfastöðum í Soginu og fenginj frá veida.is

Halldór Gunnarsson, Flugubúllukarl er duglegur að segja frá afrekum sínum og sinn á bökkum vatnanna, en grúppa með hann í fararbroddi opnaði Geirlandsá og fann út með dróna að Ármótin væru stoppuð af fiski (að venju og þarf engan dróna í það). Halldór ég félagar hrepptu allskonar skilyrði, en frábær inn á milli og þá var mok og vel það.

Svakaleg hrygna hjá Halldóri í Flugubúllunni. Myndin er af heimasíðu hans á FB.

„Þetta voru hátt í 300 fiskar,“ segir Halldór á FB og hafa þá veitt hvern drónafisk að minnsta kosti einu sinni, suma kannski oftar, en eftir liggur, geggjuð minning fyrir þessa veiðimenn því afar mikið af þessum fiski var gamall hrygnignarfiskur, 70 cm og yfir.

Á sama tíma vorum við að fá líkar senur úr Tungulæk, Tungufljóti og Eldvatni. Ekki tölur, en frábær veiði þegar rofaði til. Enda er fín uppsveifla í birtingi sem stendur og mikið af honum. Og vegna sleppiskyldu er ekki jafn fágætt og fyrrum að fá 80cm-plús og áður var.

Kolla sendi okkur þessa, annar af tveimur sem náðust á land á einni klukkustund í dag. spikfeitur, fiskur, e.t.v. geldfiskur?

Þá hefur Selfoss-Kolla í Veiðibúð Suðurlands sagt okkur að enn um sinn séu menn rétt „að skreppa“, en alltaf að landa fallegum fiskum og Kolla segir þá fara stækkandi dag frá degi, eins og vænni fiskurinn sé að skríða neðar í kerfið. En Við tölum oft við Kollu. Hún sér um Laugardæli í Ölfusá, kannski eru þar að finna lægstu verðin á fimm stjörnu sjóbirtingsveiðum. Allavega þangað til að stór leigutaki kemur og sogar það til sín. Nýta það sem sagt meðan að gefst.

Áður en við stymplum okkur út að sinni, þá höfum við heyrt af fínum urriðaskotum í Hólaá, bæði á svæðum sem heyra undir veida.is og IO veiðileyfi. Þarna er líka á ferðinni frábær veiði á allt öðru en yfirprís. Og talandi um veida.is, Kristinn Ingólfs birti í dag myndasyrpu af mönnum sem voru þar að opna og ekki bar á öðru en að þar væri býsna líflegt.