Fyrrir yngstu byrjendurna – Kostuð kynning

Sér yfir Bugtina og Strenghorn. Hátt í þarna. Mynd Ásdís G.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að yngstu upprennandi fluguveiðifólkið þarf nettari stangir heldur en þeir sem eldri eru eða reyndar. Vesturröst er með akkúrat rétta gripinn Fluguveiðisett fyrir yngri byrjendur sem þurfa nettari græjur , léttari og með nettara handfangi . Sett sem auðvelt er að kasta með.

Framleiðandinn er Orvis og þeir segja að það skipti máli að koma nýjum ungum fluguveiðimönnum á réttan kjöl strax í byrjun. Þess vegna hafi þeir þróað og framleitt Encounter Mighty-Mite  flugustangarsettið. Fyrir smáar hendur og stóra drauma. Þetta er súpernett stöng í fjórum hlutum og aftasta skaftið er ögn lengra en á venjulegri einhendu. Til að hjálpa smáum höndum að ráða betur við rokur hjá stórum fiski. Eða smáum, skiptir ekki máli. Það sem máli skiptir er að litlu hendurnar ráði við verkefnið og með það í huga er stöngin hönnuð.