Vesturröst er í samstarfi við VoV fyrir jólin. Þegar hafa tvær kynningar verið birtar og sú þriðja hér. Þær verða fleiri, enda langar marga til að gefa veiðidót í jólagjöf. Og málið er, að það þarf ekki að kosta handlegg. Allskonar aukabúnaður, nauðsynlegur og/eða heppilegur aukabúnaður er oft það sem vantar í vasana eða töskuna. Kíkjum aðeins…
Til dæmis bendum við á stangarhaldara í belti. „Þriðja höndin“ eins og margir segja, þarna getur þú sett stöngina í þægilega festingu , t.d. þegar gengið er eða þegar þarf að nota hendur í eitthvað annað í veiðinni. Eins og t.d. að skipta um flugu þegar staðið er úti í vatni. Heldur flestum veiðistöngum, passar á flest belti 1-2″ breið. Bráðsniðug jólagjöf.
Fyrir þá sem vilja ekki ofhugsa hlutina, þá er hægt að kaupa ainfaldlega gjafabréf. Gjafabréf er góð og þægileg gjöf og nýtist vel hjá okkur þar sem úrvalið er mikið allt árið af veiðivörum og fl. Hægt er að panta gjafabréfið hér og senda okkur nafn þess sem á að fá gjafabréfið (gert í greiðsluferli sem athugasemd).
Ef upphæð passar ekki við þær tölur sem í boði eru þá er ekkert mál að setja þá tölu sem óskað er eftir, þá þarf bara að hafa samband. Afgreitt í fallegri gjafaöskju.
Flotholt eru svo oft nauðsynleg, sérstaklega hjá yngri knslóðinni sem er að stíga fyrstu skrefin. Það eru til kúlulaga til að þyngja aðeins með vatni og svo þau löngu með rauða toppinum og smá blýkúlu neðst. Alltaf spennandi að sjá þegar rauði toppurinn hverfur snögglega ofan í djúpið. En því miður kemur það fyrir að línan er að flækjast í flotholtinu. En tæplega í þessu hérna: Flotholt með segli til að setja fluguna við þegar kastað er, svo þegar það lendir í vatninu þá dettur flugan af….og fer að veiða. Þetta flotholt hefur gefist afar vel.
Svo eitt að lokum í þessum pistli. Nú þegar svö mörgum fiskum er sleppt þá situr eftir að menn velta fyrir sér hversu þungur var hann? Til eru þeir sem segja að það skipti þá engu máli, þeir eru mældir og myndaðir. Digital vogin frá Fladen tekur lítið pláss og ef menn eru t.d. með fiskinn í háfnum þá bara krækja króknum í háfinn og fá nákvæma vigt. Hún mælir frá 10 grömmum og upp í 35 kg, en verður líklega sjaldan spurð um lægri og hærri töluna. Nú, ef fiskur er hirtur til átu þá er meðferðin mun einfaldari að sjálfsögðu.













