Grímsá var opnuð í morgun og um miðjan morguninn var búið að landa a.m.k. þremur löxum og frést hafði af einum misstum. Þetta mátti lesa í skilaaboðum leigutakans Hreggnasa á FB og kom fram að menn væru hæst ánægðir.

Laxarnir veiddust í Lækjarfossi, Viðbjóði og Langadrætti. Sá sem slapp var í Laxfossi. Fréttir úr Borgarfirði hafa verið alls konar, rólegheit í Þverá og Kjarrá, nokkuð líflegt í Norðurá og nokkrir fiskar að tínast upp í Brennu og Straumum, ekki margir þó. Annars staðar var líka frekar rólegt í Miðfjarðará og Blöndu, en hún gaf ekkert fyrstu daganna vegna afleita skilyrða sem voru afleiðing af vetrarhretinu. Urriðafoss í Þjórsá hins vegar búinn að vera afar góður og fyrir skemmstu var hann meðð betri tölu en á sama tíma í fyrra. Þær opna nú hver af annarri og er veiðifólk að sjálfsögðu spennt að fylgjast með, t.d. hefur verið líflegt að kíkja í Elliðaárnar, laxar að renna sér í gegn um teljarann og fiskar að skvetta sér á Breiðunni og sér á bök í Fossinum.