Að sjálfsögðu eru svæði Veiðikortsins meira og minna að detta í gang, gerðu það strax og það fór að hlýna er fór að líða á apríl. Þetta er nítjánda árið sem þessi hvalreki stangaveiðimanna hefur verið á boðstólum og nýtt vatn hefur bæst við.
Alls býður Veiðikortið upp á 36 veiðisvæði um land allt og upplýsingar um hver má veiða og hvað veiðist er bæði að finna í bæklingi sem fylgir hverju Veiðikorti, sem og á vef Veiðikortsins. Tvö vötn ofan Breiðdalsvíkur detta út 2024 en eitt nýtt dettur inn, Leirvogsvatn, sem er í dauðafæri fyrir veiðimenn á Suðvesturhorninu. Það er skammur akstur þangað frá höfuðborgarsvæðinu. Veitt er í suðurhluta vatnsins og þar bæði að finna urriða og bleikju, væna fiska og smærrri. Margir hafa gert fína veiði í þessu vatni í gegn um árin.
Af svæðum Veiðikortsins er annars eitt og annað að frétta, fregnar af góðum skotum í Elliðavatni, Vífilstaðavatni og Hraunsfirði hafa t.d. borist til eyra