Hofsá komin í fjögurra stafa tölu

Sá þúsundasti úr Hofsá í sumar!

Hofsá í Vopnafirði varð í dag fimmta áin til að ná fjögurra Stafa tölu og er ekki lítil framför frá fyrra ári þegar hún tók óvænta snarpa dýfu eftir nokkur ár í uppsveiflu. Nú er veiði fín í ánni.

Þúsundi laxinn kom úr Neðri Fosshyl eins og þeir sem þekkja til munu sjá og laxinn einkar fríður. Hlýindi eru komsins brostin á í Vopnafirði og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.