Þessi uppskrift, eins og sú fyrri, á einnig rætur að rekja til bókarinnar Réttir úr ríki Vatnajökuls sem ritstýrð var af Halldóri Halldórssyni matreiðslumeistara, en hann lærði handtökin á Hótel Höfn á sínum tíma. Bókin, sem kom út 2006 er algjör klassísk þar sem allt er miðað við hráefni sem fyrirfinnst í ríki Vatnajökuls. Hér er hægelduð gæsabringa.
Þennan rétt höfum við að sjálfsögðu prófað og jafnvel sett inn sérviskulegar breytingar. En efnisyfirlitið er svo hljóðandi og er miðað við fjóra. Menn bæta bara við eftir því hversu margir ætla að taka þátt í veislunni:
4x 200 gramma bringur.
Salt og pipar
Kartöflur:
400 gr sætar kartöflur
400 gr bökunarkartöflur
Olívuolía
Salt og pipar aftur.
Sósan:
Laukur, eitt stk lítill
Ein gulrót
Timian, ferskt 2 greinar
3 dl rauðvín
3 dl vatn
2 tsk rifsberjahlaup
Nauta- eða villikraftur
Valhnetur
Valhnetur (þessu höfum við sleppt og rýrir ekki réttinn að okkar mati þó að kokkurinn sé ábyggilega ósammála!
100 gr valhnetur
Hálfur dl sykur
Hálfur dl appelsínusafi
Þetta er slatti af efni, en rétturinn er samt alls ekki flókinn. Forhita þarf ofninn í 140 gráður og svo er bringunum lokað á pönnu og hent yfir slatta af salti og pipar. Þetta er ekki heil gæs, þannig að eldunin í ofninum ætti ekki að þurfa lengri tíma en 30-40 mínútur. Hvíla þær síðan í kortér aðeun en þær eru skornar.
Meðlætið:
Sætu kartöflurnar eru flysjaðar og þær ásamt bökunarkartöflunum eru skornar ca sentimeters bit. Þetta er kryddað með salti og pipar og bakað í á 210 gráðum á meðan að bringurnar eru að hvíla sig.

Frábært vín með gæsinni
Ramon Bilbao Edicion Limitada. Spænskt eins og nafnið gefur til kynna. Dökkkirsuberjarautt. Þétt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Skógarber, plóma eik, vanilla.
BRAGÐFLOKKUR: KRÖFTUGT OG ÓSÆTT
Hér eru vín með kraftmiklu berjabragði, oftar en ekki eikarþroskuð, alkóhólrík og stundum nokkuð tannísk. Flest þeirra er hægt að geyma í nokkur ár.