Hraunsfjörður er mögnuð veiðislóð

Vatnið er afar barnavænt. Myndin er frá vesturströndinni. Mynd Einar Falur.
Hraunsfjörðurinn er eitt af allra skemmtilegustu veiðisvæðum Veiðikortsins. Þar er mikið af sjóbleikju og einnig er von á staðbundinni bleikju, stöku laxi og sjóbirtingi. Þar hafa meira að segja veiðst regnbogasilungar, en enginn sérstakur slægur er í þeim. Þarna var í allnokkur ár rekin hafbeitarstöð fyrir lax og ummerki eftir hana er að finna við sjávarmálið þar sem þjóðvegurinn liggur yfir vatnið.
Þetta er sem sagt nánast sjávarlón sem lokað er með stiflu við fjöruborðið. Mörgum finnst gaman að veiða þarna því að sjávarfalla gætir upp að stifle og oft sjá men fiskinn koma inn og snudda í kringum mannvirkið, bæði bleikju og lax. Þetta er þó ekki besti veiðistaðurinn. Inn með hrauninu að vestan er frábær bleikjustaður, en þarf að ganga dálítið yfir úfið hraunið.

Falleg sjóbleikja úr Hraunsfirði. Mynd Haraldur Eiríksson.
Það tekur ekki langa stund og getur verið þess virði. Þar við hraunröndina liggur oft gríðarlega mikið magn af bleikju og tökuhviðurnar geta verið gríðarlegar. Í fyrra þótti bleikjuveiðin í vatninu hafa dalað, en við fréttum samt af stórfjölskyldu sem þarna kom og veiddi með 4-5 stöngum snemma í ágúst og var aflinn þegar yfir lauk kominn yfir 200 fiska. Langt var þó frá því að allt hafi verið drepið og mest af þessum fiski var 1,5 til 2 punda sjóbleikja, þannig að enn er þarna um auðugan garð að gresja. Þarna fá menn stundum góð skot með þurrflugu þegar vind stillir og spegill leggst á vatnið. Frábær staður.
Enn lengra inn með vatninu að austan eru fleiri staðir sem sjaldan eru reyndir nú til dags því þangað er nokkru gangur og styttra í aðra góða veiðistaði.

Magnað! Uppítökur undan hraunina að austan. Mynd Haraldur Eiríksson.
Þá kíkjum við aðeins vestan til. Rétt ofan við stífluna er mjög góður staður og er þá veitt í drjúgri vík sem þar er. Þarna er oft mikið af bleikju, sérstaklega þegar göngur eru nýskriðnar inn í lónið. Út með allri vesturströnd vatnsins má vaða út og kasta og alls staðar getur verið fiskur og í stilltu veðri má sjá fiskinn sveimandi allt um kring. Það var á þessu svæði sem “handleggjalöngu” bleikjurnar sáust í fyrra.

Klógulir ernir osfrv...hér er einn á veiðum í Hraunsfirði. Mynd Haraldur Eiríksson.
Innar með vesturströndinni er loks komið inn í botn og þar rennur lítil spræna í lónið. Spræna þessi er lítil, en varla er vafi á því að í hana hleypur bleikja í haustrigningum til hrygningar. En það er útaf ósi sprænunnar sem einn besta veiðistað vatnsins er að finna. Það er ekki veiðilegt yfir að líta frá bakkanum, grynningar svo langt sem augað eygir og drullubotn í þokkabót. En yfir þessa drullu þarf að vaða. Það er leiðinlegt því hún er gljúp, en öll él styttir upp um síðir og áður en varir er drullan að baki lögð og við tekur dýpkandi kantur. Þarna lenda menn oft og iðulega í frábærri veiði, sérstaklega þegar hallar sumri. En þó getur þarna verið veiði hvenær sem er. Finnst mönnum á stundum að þeir standi í miðju fiskabúri þegar bleikjutorfurnar ganga inn að kanti þessum.

Það er ótrúlega fallegt í Hraunsfirði. Mynd Haraldur Eiríksson.
Þá er veiðistaðalýsingu lokið. Allt löglegt agn er leyfilegt og allt gefur veiði. Yfir höfuð heyrir maður þó mestu aflasögurnar af fluguveiðimönnum. Allar þessar venjulegu sjóbleikjuflugur eiga til að gefa veiði, straumflugurnar Bleik og blá og Heimasætan eru sérstaklega góðar, einnig lítill appelsínugulur Nobbler. Púpur sem við höfum heyrt að hafi gefið veiði eru Peacock, Phesant tail og fleiri þekktar. Annars er málið að reyna eitthvað nýtt ef engar eru tökurnar. Við þetta má bæta, að ægifagurt er við Hraunsfjörð, fallegra en gengur og gerist segja margir og ekki ætlum við að deila um það. Síðan er það algengt að "klógulir ernir yfir veiði hlakka", en þarna nálægt eru þekkt og rótgróin arnaróðul. Allar nánari upplýsingar má fá á vef Veiðikortsins, www.veidikortid.is en handhafar þess mega eyða öllu sumrinu í Hraunsfirði ef þeir þess óska!
