Hraunsfjörðurinn er eitt af allra skemmtilegustu veiðisvæðum Veiðikortsins. Þar er mikið af sjóbleikju og einnig er von á staðbundinni bleikju, stöku laxi og sjóbirtingi. Þar hafa meira að segja veiðst regnbogasilungar, en enginn sérstakur slægur er í þeim. Þarna var í allnokkur ár rekin hafbeitarstöð fyrir lax og ummerki eftir hana er að finna við sjávarmálið þar sem þjóðvegurinn liggur yfir vatnið.
Vífilstaðavatn er eins og vasaútgáfa af Elliðavatni og bæði hugnast mörgum betur minna svið og þar fyrir utan eykur vatnið fjölbreytnina á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er lítið vatn, aðeins um 0,27 ferkm að flatarmáli og er jafnvel vorveiðivatn númer eitt á Íslandi, því þar má hefja veiðiskap 1.apríl núorðið á meðan menn þurfa að bíða eftir 1.mai í Elliðavatni.